Gaflarinn
6.-7. ágúst 2011
Staður: Kaplakriki
Dagur: 6. – 7. ágúst, 2011
Frjálsíþróttadeild FH býður ykkur velkomin á Gaflarann 6.-7. ágúst í Kaplakrika. Mótið er fyrir íþróttamenn 10 ára – 14 ára (fædd 2001-1997).
Skráningar: skulu berast í mótaforriti FRÍ fyrir miðnætti fimmtudaginn 4. ágúst.
Skráningargjald er 625 krónur á grein, eða 2.500 krónur ef skráð er í fleiri en 4 greinar, fyrir boðhlaupssveit kostar 1.000 krónur. Hægt er að greiða þátttökugjöld inn á reikning 0327-26-9031, kt. 681189-1229.
Keppnisgreinar:
10 ára: 60m, 400m, 4x200m, langstökk, boltakast
11-12 ára: 100m, 200m, 400m, 1000m bhl., hástökk, þrístökk, kúluvarp, spjótkast
13-14 ára: 100m, 200m, 400m, 1000m bhl., hástökk, þrístökk, kúluvarp, spjótkast
Þyngdir kastáhalda- þrístökk
Þyngd kúlu: 11 ára stúlkur 2 kg 11 ára piltar 2 kg
12 ára stúlkur 2 kg, 12 ára piltar 3 kg
13 ára stúlkur 2 kg, 13 ára piltar 3 kg
14 ára stúlkur 3 kg, 14 ára piltar 4 kg
Þyngd spjóts:
11-14 ára stúlkur, 400 g
11-13 ára piltar, 400 g. 14 ára piltar, 600 g.
Ekki eru sérreglur um þrístökk, stokkið er af planka, en ekki svæði
Tímaseðill: er kominn inn á mótaforritið.
http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib1685.htm
10 ára keppa aðeins á laugardeginum.
11-14 ára keppa laugardag og sunnudag.
Keppnin:
Allir fá 4 stökk og köst, og 6 bestu tímarnir komast áfram í úrslitum í 100 m hlaupinu.
Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri grein.
Veitingasala verður á staðnum á meðan á keppninni stendur.
Verið velkomin í Hafnarfjörðinn.
Frekari upplýsingar gefur Silja Úlfarsdóttir silja@siljaulfars.is
Frjálsíþróttadeild FH
Silja Úlfars
s. 698-3223
silja@siljaulfars.is