VÍS og FH vinna saman
7.10.2011
SR
VÍS og Handknattleiksdeild FH hafa gert með sér samstarfssamning fyrir næstu þrjú tímabil eða til ársins 2014. VÍS verður einn af aðalstyrktaraðilum Handknattsleiksdeildar FH og munu allir keppnisbúningar félagsins verða með merki VÍS.

Á myndinni má sjá Auði Björk Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra sölu- og þjónustusviðs VÍS, og Jónu Björg Björgvinsdóttur, formann Handknattleiksdeildar FH, handsala samninginn í Kaplakrika í gærkvöldi. Með þeim á myndinni eru Pálmar Sigurðsson frá FH og Guðmundur Pedersen, þjónustustjóri VÍS í Hafnarfirði.