Valur spáir FH sigri gegn Val

8.2.2009 Heiðar Arnarson

Valur bjó lengi vel í Breiðholtinu en ferðaðist í strætó að Hlíðarenda til að fara á æfingar ásamt nokkrum öðrum drengjum, ca. 10 þegar mest lét.

Í Val lék okkar maður með ekki ómerkari mönnum en Ólafi Stefánssyni, Degi Sigurðssyni, Óskari Bjarna Óskarssyni ásamt mörgum öðrum og var sá flokkur gríðarlega sigursæll, unnu allt sem hægt var að vinna á þeim 10 árum sem Valur lék á Hlíðarenda. Tvítugur að aldri hélt Valur norður yfir heiðar ásamt Óskari Bjarna og lék í 2 ár með KA þangað til hann fór til Danmerkur. Að lokinni Danmerkurdvöl kom Valur heim ef svo má segja og lék með FH við góðan orðstír þangað til í fyrra. FH vann sér sæti í efstu deild að nýju og var Valur fyrirliði liðsins svo hann hætti á góðum tímapunkti og skildi við FH í góðum málum.

Val líst vel á liðið í dag, góð blanda af yngri og eldri leikmönnum, auk þess sem góðir leikmenn hafa bæst við hópinn. „Fyrir tímabilið var raunhæft að halda sæti sínu í deildinni en nú með tilkomu nýrra leikmanna sé ég liðið ná í úrslitakeppnina. Ungu strákarnir bættu sig gríðarlega mikið í sumar að styrk, þeir eiga fullt erindi í eldri leikmennina og það er búið að vera gaman að sjá menn eins og t.d. Sigga línumann(Sigurð Ágústsson) eiga í fullu tré við suma jakana í deildinni þrátt fyrir að vera ekki mjög þungur. Það er bjart framundan í FH,“ segir Valur.

Hvað leikinn í dag varðar, undanúrslit í bikar, gegn Hlíðarenda-piltum er Valur bjartsýnn. „Ég tel Val vera með sterkara lið á pappírnum, þeir eru ásamt Haukum Íslandsmeistarakandídatar að mínu mati. Ég segi samt að það getur allt gerst í bikarnum og ætla því að vera rosalega bjartsýnn og spá FH sigri, 28-26.“

Þetta eru góð lokaorð sem við vonum að verði að raunveruleika. FH.is þakkar Val Arnarssyni fyrir spjallið og hvetur alla FH-inga, unga sem aldna, að mæta að Hlíðarenda og styðja liðið með ráðum og dáðum alla leið í bikarúrslit í Laugardalshöll.

Áfram FH!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH