Valur - FH í Eimskipsbikarnum

6.2.2009 Heiðar Arnarson

Mætum öll á stærsta handboltaleik ársins!!! Bikarinn er í húfi...
Frábær dagskrá frá kl 15. Ingó í Veðurguðunum treður upp. 
Forsala er sem hér segir:
  • Í dag, föstudag, Firði Hafnarfirði frá kl 16:30 - 18,
  • Laugardag í Firði milli 14 og 18 þar sem leikmenn FH verða á staðnum.
  • Sunnudag í Kaplakrika milli 13 og 15.
Aðgangseyrir er 1000 kr. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.
 
Rútuferðir verða farnar frá Kaplakrika kl 14:30 en húsið opnar kl 13 þar sem FHingar geta fengið andlitsmálningu, keypt sér pizzu á vægu verði og verslað sér FH varning til að magna upp stemmningu á leiknum.

Fylgist vel með framundan á
www.fh.is, handboltaspekúlantar spá í spilin, FH TV og fleira.



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?