Vís

Upphitun: UMFA - FH, N1-deild karla

25.10.2011 Árni Freyr Helgason

6. umferð N1-deildar karla hefst á fimmtudaginn en þá sækja FH-ingar lið Aftureldingar heim í Varmá. Er þetta síðasti leikur FH-liðsins um nokkurt skeið, því eftir 6. umferðina tekur við tveggja vikna hlé á deildinni. Má hér búast við hörkuleik, enda tvö lið að mætast sem eiga mikið undir - FH-ingar vilja freista þess að ná toppsæti deildarinnar en Afturelding vill fyrir alla muni mjaka sér aðeins frá liði Gróttu sem situr á botninum. Það verður því án efa hart barist í Mosfellsbæ.



Afturelding

Lið Aftureldingar er um þessar mundir í næstneðsta sæti N1-deildar karla með 2 stig, stigi á undan liði Gróttu. Einn sigur hefur unnist en fjórir leikir hafa tapast. Mosfellingar hafa í þessum leikjum skorað 109 mörk, fæst allra liða í deildinni, en fengið á sig 133.

Tímabilið hefur hafist með látum í Mosfellsbænum. UMFA fékk rækilegan skell í fyrsta leik, gegn Akureyri, og á eftir því komu tveir sannfærandi tapleikir gegn Val og HK. Þeir unnu þó geysilega góðan sigur á Gróttu á Seltjarnarnesi í kjölfarið og voru svo óheppnir að sigra ekki Hauka í síðasta leik, en þar voru Mosfellingar með yfirhöndina lengst af. Ber sá leikur með sér að stígandi sé í Varmá og má því búast við liðsmönnum Aftureldingar sterkum gegn FH-ingum.

En sviptingarnar hafa ekki bara verið innan vallar hjá Aftureldingu. Þjálfaraskipti hafa nú þegar átt sér stað, Gunnar Andrésson lét af störfum eftir leik liðsins við HK og við starfi hans tók Reynir Þór Reynisson, sem þjálfaði lið Fram á síðustu leiktíð. Stýrði hann sínum fyrsta leik gegn Haukum síðastliðinn fimmtudag.

Ef rýnt er í mannskap Aftureldingar er auðvelt að sjá hver er sterkasta staða þeirra á vellinum. Í búrinu eru þeir nefnilega feykilega vel mannaðir, en þar stendur að jafnaði norðanmaðurinn Hafþór Einarsson, sem er án alls vafa einn besti markvörður deildarinnar. Hefur hann reynst Mosfellingum afar drjúgur síðan hann gekk til liðs við þá, og ekki síður á þessu tímabili þó að það hafi ekki alltaf skilað sér í sigrum. Ekki er varamarkvörðurinn eitthvað síðri – Mosfellingar fengu nefnilega Davíð Svansson frá Noregi fyrir tímabilið og heldur hann Hafþóri á tánum. Davíð hefur löngum verið meðal sterkustu markvarða landsins og því mikill fengur fyrir Aftureldingu. Það er því mikil breidd í þessari mikilvægu stöðu.

Annars hafa Mosfellingar á nokkuð góðu liði að skipa fyrir utan markverðina. Hilmar Stefánsson, Jóhann Jóhannsson og Sverrir Hermannsson geta allir valdið miklum usla og þá er Þrándur Gíslason oft aðsópsmikill. Þá fengu Mosfellingar góðan liðsstyrk fyrir tímabilið í þeim Einari og Helga Héðinssyni, sem komu báðir frá Selfossi. Mestan hefur þó undirritaður áhuga á vinstri skyttunni ungu Böðvari Páli Ásgeirssyni, 17 ára strák sem að lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk í fyrra – gegn FH í Kaplakrika. Böðvar hefur fengið aukinn spiltíma á þessu tímabili og var óheppinn fyrir framan markið í fyrstu fjórum leikjum Aftureldingar en sprakk út gegn Haukum, skoraði 6 mörk og var m.a.s. valinn í úrvalslið 5. umferðar í Morgunblaðinu. FH-ingar verða að hafa gætur á drengnum spili hann í leiknum, ella gæti hann orðið til vandræða.

Fyrri leikir liðanna

FH og Afturelding léku þrjá leiki á síðasta tímabili, tvisvar í Kaplakrika en einu sinni í Varmá. FH-ingar báru sigur úr býtum í öll skiptin og í öll skiptin nokkuð sannfærandi.

FH 34 – 25 UMFA, 30. september 2010, Kaplakrika.
UMFA 19 – 27 FH, 25. nóvember 2010, Varmá
FH 34 – 23 UMFA, 17. mars 2011, Kaplakrika

FH

FH-ingar sitja fyrir leikinn í Varmá í þriðja sæti deildarinnar ásamt HK, með 7 stig eftir 5 leiki. Þrír sigrar hafa unnist, einn leikur hefur endað með jafntefli og einn leikur hefur tapast. Í þessum leikjum hafa FH-ingar skorað 137 mörk, flest allra liða í deildinni, en fengið á sig 124 mörk.

FH-ingar mæta væntanlega fullir sjálfstrausts til leiks eftir síðasta leik en þar unnu FH-ingar gríðarlega sannfærandi sigur á botnliði Gróttu, 31-19. Allt var í toppstandi gegn Seltirningum, markvarslan og varnarleikurinn voru tipp topp og sóknarleikurinn gekk smurt. Sú þarf einnig að vera raunin gegn Mosfellingum eigi sigur að vinnast, enda gott og baráttuglatt handboltalið þar á ferð.

Það er að frétta af FH-ingum að Magnús Óli Magnússon meiddist gegn Gróttu, eins og víðfrægt er orðið, og verður að öllum líkindum ekki með FH-liðinu næstu þrjá mánuðina. Þá er Ragnar Jóhannsson að jafna sig eftir aðgerð og verður hann tilbúinn eftir áramót. Sem betur fer er breiddin í hópnum góð, maður kemur í manns stað eins og sást gegn Gróttu og því engin ástæða til annars en að FH-liðið geti leikið af fullum krafti í Varmá á fimmtudag.

Að lokum vil ég hvetja alla FH-inga til að leggja leið sína í Varmá og styðja okkar menn til sigurs gegn Aftureldingu. Leikurinn hefst kl. 19:30 og er í gamla sal íþróttamiðstöðvarinnar í Varmá.

Við erum FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?