Upphitun: HK - FH, N1-deild karla
12.10.2011
Árni Freyr Helgason
Fjórða umferð N1-deildar karla fer fram annað kvöld. Þá mætast lið FH og HK í Digranesi í Kópavogi. Má þar búast við hörkuleik, enda tvö lið að mætast sem spáð var góðu gengi í vetur og sem hafa það sem af er tímabili spilað ágætis handbolta. Liðin eru jöfn að stigum fyrir leikinn og því ljóst að það er um gríðarlega mikilvægan leik að ræða.

HK
HK-ingar hafa byrjað tímabilið vel og sitja 4. sæti deildarinnar með 4 stig, jafnir okkur FH-ingum að stigum. Þeir hafa unnið tvo leiki en tapað einum leik.
HK-ingar hófu sitt tímabil á tapi gegn Haukum í Digranesi en hafa síðan þá náð að vinna sigra á Gróttu og Aftureldingu. Gróttu unnu þeir með þremur mörkum eftir nokkurt ströggl en gegn Aftureldingu unnu þeir afgerandi sigur síðastliðinn sunnudag. Það má því búast við því að HK-ingar mæti fullir sjálfstrausts til leiks annað kvöld.
Lið HK er vel mannað líkt og það var í fyrra. Sem fyrr fer Ólafur Bjarki Ragnarsson, sem kjörinn var besti leikmaður deildarinnar á lokahófi HSÍ síðastliðið vor, fyrir sínum mönnum í sóknarleiknum en hann er maður sem FH-ingar verða að stoppa ætli þeir sér að ná sigri í Digranesi. Fái Ólafur frelsi til að skjóta getur hann vel klárað leiki upp á sínar eigin spýtur, en auk þess er hann lunkinn í að spila upp á félaga sína. Sömuleiðis eru þeir Bjarki Már Elísson, Ólafur Víðir Ólafsson og Atli Ævar Ingólfsson drjúgir, en Bjarki Már var einmitt markahæstur HK-inga í leik liðsins gegn Aftureldingu með 9 mörk.
Fyrri leikir liðanna
FH og HK mættust þrisvar í fyrra, tvisvar í Digranesi en einu sinni í Kaplakrika. Liðin unnu hvor sinn leikinn í Digranesi en FH-ingar báru sigurorð af HK-ingum í eina leik liðanna í Kaplakrika. Úrslitin voru eftirfarandi:
HK 35 – 32 FH, 23. október 2010
FH 22 – 20 HK, 16. desember 2010
HK 27 – 29 FH, 7. apríl 2011.
Eins og sjá má þá voru allir leikir liðanna jafnir og spennandi og má ekki búast við öðru en því sama þegar liðin leiða saman hesta sína annað kvöld.
FH
FH-ingar sitja í 3. sæti N1-deildar karla með 4 stig eftir þrjá leiki, líkt og HK-ingar. FH-ingar hafa unnið tvo af sínum þremur leikjum, gegn Akureyri og Val, en þeir töpuðu fyrir Fram í fyrsta leik tímabilsins.
FH-ingar hafa verið á góðri siglingu í undanförnum leikjum. Í kjölfarið af slæmum leik gegn Fram í Krikanum fóru strákarnir okkar norður og unnu sannfærandi sigur á Akureyringum, þar sem þeir sýndu í raun allar sínar bestu hliðar. Eftir það unnu strákarnir sanngjarnan sigur á liði Vals í jöfnum og spennandi leik. Nú síðast sigruðu FH-ingar lið Initia Hasselt frá Belgíu í Evrópukeppninni með eins marks mun, 29-28. FH-ingar hafa því fulla ástæðu til þess að vera bjartsýnir fyrir morgundeginum.
Leikur FH og HK hefst kl. 19:30 og er eins og áður segir í Digranesi. Viljum við hvetja alla FH-inga til að mæta og styðja við bakið á okkar mönnum í þessum erfiða leik.
Við erum FH!