Vís

Upphitun: Fram-FH, N1-deild karla

15.11.2011 steingrimur
Fimmtudaginn næstkomandi, 17. nóvember, sækja FH-ingar lið Framara heim í Safamýri. Má hér búast við hörkuleik, enda tvö lið í toppbaráttunni að mætast. Framarar vilja bæta upp fyrir tap í síðasta leik gegn Aftureldingu og FH-ingar vilja eflaust hefna fyrir tapið gegn Fram á heimavelli í fyrsta leik tímabilsins. Það verður því án efa hart barist í Safamýrinni á fimmtudag.



Fram
Framarar hafa hafið tímabilið með látum og eru þeir á toppi deildarinnar með 10 stig eftir 7 leiki. Þeir byrjuðu á því að koma í Krikann í fyrsta leik og sigra FH-inga nokkuð örugglega. Fram tapaði hins vegar gegn Aftureldingu í síðustu umferð á heimvelli og vilja því örugglega sýna í leiknum gegn FH á fimmtudaginn að það hafi verið mistök, með fullri virðingu fyrir Aftureldingu sem hefur verið að bæta sig undanfarið.

Ef rýnt er í mannskap Fram er ekki auðvelt að sjá hver sterkasti maður þeirra er enda mjög góðir leikmenn í öllum stöðum. Skytturnar Róbert Aron Hostert og Jóhann Gunnar Einarsson hafa þó verið drjúgir fyrir utan og í búrinu eru þeir Magnús Gunnar Erlendsson og Sebastian Alexandersson en þeir hafa báðir verið að verja frábærlega í síðustu leikjum. Ægir Hrafn Jónsson, línumaður Fram er einnig mjög sterkur en hann var valinn í landsliðið á dögunum. Ekki má gleyma Ingimundi Ingimundarsyni sem hefur sýnt það að hann er góð skytta fyrir utan. Hægri hornamaður Fram, Einar Rafn Eiðsson getur valdið miklum usla og þarf að hafa góðar gætur á honum í leiknum.

Fyrri leikir liðanna
FH og Fram mættust í fyrstu umferð N1-deildar karla þetta tímabilið. Í þeim leik unnu Framarar þægilegan 5 marka sigur, 23-28.

FH 23-28 Fram, 26.september 2011, Kaplakrika.

FH 
FH situr í 3. sæti deildarinnar með 9 stig að 6 leikjum loknum. Síðasti leikur sem FH spilaði í deildinni var gegn Aftureldingu á útivelli 27. október. Sá leikur vannst með þremur mörkum 29-26.

FH-ingar mæta væntanlega fullir sjálfstrausts til leiks eftir leikinn gegn Akureyri á sunnudaginn sl. en þar unnu FH-ingar sigur 34-21. Allt var í toppstandi í þeim leik, markvarslan og varnarleikurinn voru tipp topp og sóknarleikurinn gekk smurt. Sú þarf einnig að vera raunin gegn Fram eigi sigur að vinnast.

Strákarnir þurfa virkilega á stuðningi að halda í þessum leik. Því vil ég hvetja þig, kæri FH-ingur, að leggja leið þína í Safamýrina á fimmtudaginn. Komum með gömlu góðu FH-geðveikina í stúkuna og fjölmennum.
Við erum FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?