Vís

Upphitun: FH - Valur, Meistarar Meistaranna

19.9.2011 SR

Nú er loksins komið að því! Handboltinn er að byrja! Fyrsti opinberi leikur tímabilsins fer fram á morgun, þriðjudaginn 20. September. Það er titill í húfi í árlegum leik “Meistarar Meistaranna”. Íslandsmeistarar FH og bikarmeistarar Vals mætast í í Mekka handknattleiksins á Íslandi, Kaplakrika klukkan 19:30.

 

Valur:

Lið Valsmanna varð bikarmeistari á síðasta tímabili eftir hörkuúrslitaleik gegn Akureyringum, þar sem þeir höfðu betur 26-24. Þeir lentu hins vegar í vandræðum í deildinni og komust ekki í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í mörg ár eftir að hafa lent í 6. sæti N1-deildarinnar með 20 stig. Þar er hins vegar bikarmeistaratitillinn sem skilar Valsmönnum leikinn á morgun gegn FH og telur gengi liðsins í deildinni á síðasta tímabili ekki .

 

Valur hefur leikið gríðarlega vel á undirbúningstímabilinu. Liðið vann t.a.m. deildarmeistara síðasta árs, Akureyri í úrslitaleik Opna Norðlenska æfingamótsins á Akureyri á dögunum. Valur hafði til að mynda unnið Hauka fyrr á mótinu. Valsmenn hafa fengið góða leikmenn til liðs við sig fyrir komandi leiktíð. Gunnar Harðarson, sterkur línumaður gekk aftur í raðir Valsmanna eftir dvöl í Danmörku. Valsmenn fengu öfluga hægriskyttu í Magnúsi Einarssyni. En mestur var fengurinn hins vegar í varnartröllinu Sigfúsi Sigurðssyn, sem gekk í raðir Valsmanna frá þýska liðinu Emsdetten.. Sigfús hefur verið meðal bestu línu- og varnarmanna Íslendinga undanfarin ár og kemur vafalaust til með að vera atkvæðamikill fyrir Valsmenn í vetur.

 

Fyrri viðureignir liðanna:

FH og Valur öttu kappi einu sinni á undirbúningstímabilinu. Sá leikur var á æfingamótinu árlega sem kennt er við Hafnarfjörð. Leikurinn var kaflaskiptur og FH leiddi með einu marki í hálfleik. Síðari hálfleikur var FH-inga og sigruðu þeir Valsmenn í þessum æfingaleik 25-20 eftir að hafa verið í hálfleik 14-13. Markahæstu leikmenn FH í leiknum voru Ólafur Gústafsson með 4, Atli Rúnar, Ragnar Jóhannsson, Hjalti Þór og Baldvin Þorsteinsson með 3 mörk hver. Hjá Valsmönnum voru Sturla Ásgeirsson og Anton Rúnarsson markahæstir. Sturla með 7 mörk og Anton með 6. Eins og áður segir þá unnu Valsmenn Opna Norðlenska æfingamótið á Akureyri á dögunum og greinilegt að Valsmenn hafa tekið gríðarlegum framförum frá þessum leik milli FH og Vals á Hafnarfjarðarmótinu. Auk þess sem það vitað að úrslit í því móti skipta litlu máli, eins og oft vill verða með æfingamót af þessu tagi.

 

FH:

Lið Íslandsmeistara FH mætir eflaust ferskt til leiks í Krikanum á morgun – enda alltaf tilhlökkunarefni þegar nýtt tímabil er að hefjast og löngu undirbúningstímabili lýkur. FH-ingar, sem enduðu í 2. sæti N1-deildarinnar í fyrra, ætla sér stóra hluti í vetur og munu því eflaust mæta ákveðnir til leiks.

 

Ljóst er að lið FH er töluvert breytt frá síðasta vetri. Ásbjörn Friðriksson, miðjumaðurinn sterki sem lék með FH síðasta vetur, er horfinn á braut til Svíþjóðar og besti varnarmaður deildarinnar Sigurgeir Árni Ægisson hélt til Noregs. Ólafur Guðmundsson er farinn til Danmerkur og Benedikt Reynir Kristinsson gekk til liðs við nýliða Gróttu. Í staðinn komu knáir kappar til félagsins. Línumaðurinn Atli Hjörvar Einarsson og hægri skyttan Ragnar Jóhannsson komu frá Selfoss sem féll um deild. Vinstri skyttan og miðjumaðurinn Hjalti Þór Pálmason kom frá Gróttu. Auk þess snéru gamalkunnir FH-ingar á gamlar slóðir, miðjumaðurinn Andri Berg Haraldsson snéri aftur eftir langa útlegð í Fram. Á móti kemur að mikið er um meiðsli – línumaðurinn Sigurður Ágústsson er að jafna sig eftir krossbandsslit. Miðjumaðurinn Örn Ingi Bjarkason og vinstri skyttan Ólafur Gústafsson eru að komast á fullt skrið en þessir leikmenn hafa verið mikið meiddir á undanförnum tímabilum. Örn Ingi mun hins vegar ekki spila á morgun að sökum höggs sem hann hlaut á æfingu - óljóst er hvursu lengi hann verður frá keppni. Baldvin Þorsteinsson, nýr fyrirliði FH er að ná sér að fullu eftir slæm meiðsli sem hann hlaut í umtöluðu Hafnarfjarðarmóti. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort Baldvin muni spila á morgun, en hann verður þó í leikmannahópnum. Skinsamlegasta ákvörðunin væri líklegast sú að láta Baldvin hvíla á morgun, því 7 dagar eru í fyrsta leik í deildinni gegn Fram 26. september í Kaplakrika.

 

FH-ingar tóku aðeins þátt í einu æfingamóti í sumar, s.b.r. við þrjú á síðasta undirbúningstímabili. Það var Hafnarfjarðarmótið þar sem sigur vannst gegn Val en leikir gegn sænska liðinu Eskilstuna Guif og Haukum töpuðust. FH-ingar tóku hins vegar þátt í forkeppni Meistaradeildarinnar en eftir hetjulega baráttu í leikjunum tveimur sem fjallað eru um hér töpuðust þeir. FH-ingar munu hins vegar taka þátt í EHF keppninni og mun fyrsti leikur keppninnar fara fram 9. október ytra í Belgíu gegn sterku liði Initia Hasselt. Seinni leikurinn mun fara fram í Kaplakrika þann 16. október.

 

Strákarnir hafa æft af krafti í allt sumar og er markmiðið í leiknum aðeins eitt: sigur – líkt og í öllum leikjum. Mikilvægt er að hefja nýtt mót af krafti, og hafa okkar menn alla burði til þess. Það er þó á hreinu að þetta verður hörkuleikur – og í hörkuleikjum þarf stuðning! Ég vil því hvetja ALLA FH-inga til að mæta á svæðið og styðja okkar menn til sigurs! HSÍ sér um leikinn, en veitingar verða eins og venjulega fyrir Bakhjarla í Sjónarhól.

 

Allir á völlinn – Við Erum FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?