Vís

Upphitun: FH - St. Raphaël, EHF-bikarinn

25.11.2011 Árni Freyr Helgason
  Á sunnudaginn næstkomandi, 27. nóvember, má segja að stórviðburður fari fram í Kaplakrika. Leikur sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu er nú loks í nánd. Hér er rætt um viðureign Íslandsmeistara FH og franska liðsins St-Raphäel, sem er án alls vafa eitt allra sterkasta lið Frakklands um þessar mundir. Það verður spennandi að sjá FH-inga taka á Frökkunum, enda ekki á hverjum degi sem að lið í þessum gæðaflokki leikur hérlendis.



St-Raphäel
Lið St-Raphäel hefur byrjað tímabilið vel og situr um þessar mundir í 3. sæti Frönsku deildarinnar með 14 stig eftir 10 leiki, fjórum stigum á eftir Montpellier (sem að skartar m.a.s. Nicola Karabatic, besta handknattleiksmanni heims) og Chambéry, sem sitja jöfn á toppinum með 18 stig. St-Raphäel hefur unnið 7 leiki en tapað þremur, þar af leikjum sínum tveimur við toppliðin (St-Raphäel 20 – 23 Chambéry, Montpellier 35 – 23 St-Raphäel).

Uppgangur St-Raphäel hefur verið mikill undanfarin ár. Félagið komst í fyrsta sinn í efstu deild árið 2004, féllu á nýjan leik en unnu síðan sigur í næstefstu deild árið 2007 og hafa leikið í efstu deild síðan þá. Liðið endaði í 6. sæti tímabilin 2007-2008 og 2008-2009 (í 14 liða deild) en tímabilið 2009-2010 endaði liðið í 4. sæti deildarinnar og komst þar með í Evrópukeppi í fyrsta sinn í sögu félagsins. Á síðasta tímabili endaði liðið á nýjan leik í 4. sæti og komst þar með í Evrópubikarinn, þar sem að þeir mæta nú liði FH-inga.

St-Raphäel lék í Frönsku deildinni í gær og mættu þar Ivry, sem að er í næstneðsta sæti deildarinnar. Unnu St-Raphäel sigur, 29-28. Markahæstur var Aurélien Abily, hægri skytta, með 8 mörk. Raphaël Caucheteux, vinstri skytta, skoraði 6 mörk.

Ljóst er að Franska liðið er feykilega vel skipað. Innan vébanda þess eru fjölmargir reyndir landsliðsmenn, auk annarra sem leikið hafa unglingalandsleiki fyrir hönd Frakklands. Þekktasti leikmaður liðsins er án nokkurs vafa Tékkneski landsliðsmaðurinn David Juricek, sem gekk til liðs við St-Raphäel frá Montpellier fyrir þetta tímabil. Juricek er línumaður að upplagi en getur auk þess leikið á miðju og í vinstra horni. Hefur hann leikið 96 landsleiki fyrir Tékkland og skorað í þeim 293 mörk. Annað þekkt nafn er Geoffroy Krantz, sem leikið hefur 29 landsleiki fyrir Frakkland og skorað 32 mörk, en sá er leikstjórnandi sem kom frá Gummersbach fyrir þetta tímabil. Þá inniheldur liðið einnig Heykel Megannem, miðjumann frá Túnis, sem hefur verið einn af burðarásum síns landsliðs um margra ára skeið.

Fulltrúar St-Raphäel í Franska landsliðinu eru a.m.k. þrír, en auk Krantz hafa þeir Yohann Ploquin (markvörður) og Raphaël Caucheteux (vinstri skytta) leikið landsleiki fyrir hönd Frakklands. Þá inniheldur liðið m.a.s landsliðsmenn frá Serbíu, Rúmeníu og Úkraínu.

Þjálfari liðsins er Christian Gaudin, 44 ára fyrrum landsliðsmarkvörður Frakka. Hann vann á sínum ferli sem leikmaður til fjölmargra verðlauna, en hann varð tvisvar sinnum heimsmeistari með Frökkum (árið 1995 og 2001), auk þess sem að hann varð bæði Evrópumeistari (2002) og Þýskalandsmeistari (2001) með Magdeburg undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Það er greinilegt að eitthvað hefur hann lært af fremsta þjálfara Íslenskrar handboltasögu, því undir hans stjórn hefur gengið prýðilega hjá St-Raphäel.

Eftir nokkurn lestur um franskan handknattleik er undirrituðum ljóst að hér er um hörkulið að ræða. Það hefur, eins og sést hér að ofan, yfir gífurlega góðum leikmannahópi að skipa og sýna úrslitin undanfarin ár fram á það. Það er jú ekki á allra færi að enda í 4. sæti einnar sterkustu deildar í heimi.

FH
Íslandsmeistarar FH sitja í 4. sæti N1-deildar karla eftir síðustu umferð með 10 stig eftir 8 leiki. FH-ingar hafa unnið fjóra leiki, tapað tveimur leikjum en gert tvö jafntefli. Markatala liðsins er jákvæð um 15 mörk, 228 mörk hafa verið skoruð en liðið hefur fengið á sig 213 mörk.

Síðasti leikur FH-inga var á miðvikudaginn, 23. nóvember, en þá mættu Akureyringar í Krikann. Áttu bæði lið í raun fínan leik og jafntefli (29-29) var sanngjörn niðurstaða, þó FH-ingar hafi vissulega verið óheppnir að vinna ekki leikinn. En á sunnudaginn tekur við nýr leikur, ný keppni, svo að FH-ingar verða að hrista af sér allt mögulegt svekkelsi til þess að mæta sem ferskastir í viðureignina.

Augljóst er að verkefni sunnudagsins er krefjandi, svo ekki sé meira sagt. St-Raphäel er vel þjálfað atvinnumannalið með breiðan hóp af hæfileikaríkum handknattleiksmönnum og má því búast við erfiðum leik. En handboltaleikir vinnast ekki á leikskýrslunni. Staðan í upphaf leiks verður 0-0, rétt eins og í öllum öðrum leikjum. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.

Kæru FH-ingar, ef að það hefur einhvern tímann verið ástæða til að leggja leið sína í Kaplakrika til að styðja sitt lið þá er það nú. Ef það hefur einhvern tímann verið ástæða til að klappa, stappa, öskra og syngja þá er það nú. Nú gefst strákunum tækifæri til að gera eitthvað einstakt. Strákunum gefst tækifæri til að sýna hvað í þeim býr gegn andstæðingi sem fyrirfram gæti talist sem ofurefli. Og þið, FH-ingar góðir á pöllunum, getið að sjálfsögðu hjálpað til. Öll í sameiningu getum við verið áttundi maðurinn.

Leikur FH og St-Raphäel verður leikinn á sunnudaginn í Mekka handknattleiksins á Íslandi, Kaplakrika, og hefst klukkan 17:00. Ekki láta þig vanta á pallana.

Við erum FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?