Vís

Upphitun: FH - Initia Hasselt, EHF-bikarinn

14.10.2011 Árni Freyr Helgason

Nú er komið að því sem margir hafa beðið eftir. Fyrsti heimaleikur FH-inga í Evrópukeppni í mörg ár fer fram á sunnudaginn, en þá mæta þeir Belgísku lands-og bikarmeisturunum í Initia Hasselt. Um er að ræða seinni viðureign liðanna tveggja í 2. umferð EHF-bikarsins, en FH-ingar unnu fyrri viðureign liðanna með eins marks mun, 29-28. Það má því búast við hörkuleik á fjölum Kaplakrika þar sem að Belgarnir koma án efa til með að selja sig dýrt og þurfa FH-ingar því að eiga virkilega góðan leik til að sigra.

Ég verð í raun að viðurkenna að þekking mín á Belgískum handbolta er sáralítil. Þó virðist Initia vera stórlið á mælikvarða Belganna, þeir hafa unnið bikarinn þar í landi 8 sinnum, eða næst oftast allra liða. Þá hafa þeir unnið Belgíska meistaratitilinn alls 11 sinnum.

Initia hefur leikið 7 leiki í Belgísku deildinni það sem af er tímabili og unnið 5 þeirra en tapað tveimur. Síðustu þrjá leiki hafa þeir unnið og vannst sá síðasti, sem fór fram á miðvikudaginn, með 13 marka mun (Initia 42 – 29 Beyne). Undirritaður á því ekki von á öðru en því að lið Initia mæti vel stemmt til leiks, vongott um góð úrslit í Kaplakrika.

Leikur liðanna í Belgíu var kaflaskiptur. FH-ingar stjórnuðu algjörlega gang mála í fyrri hálfleik, voru 18-12 yfir að honum loknum og útlit var fyrir að liðið myndi vinna auðveldan sigur á erlendri grundu. Sú var þó aldeilis ekki raunin. FH-ingar gáfu eftir, Initia gekk á lagið og voru lokamínútur leiksins æsispennandi. FH-ingar náðu þó að knýja fram sigur í lokin og eru því með eins marks forystu fyrir leik liðanna í Krikanum.

Ljóst er að strákarnir þurfa að leika af fullri getu ætli þeir sér að vinna sigur. Belgarnir kunna vel sitt fag og munu refsa fyrir mistök, vanmat eða kæruleysi.

Ekki má gleyma að minnast á gulrótina við þessa viðureign. Í næstu umferð getur sigurvegarinn nefnilega mætt stórliðum á borð við Rhein-Neckar Löwen, Göppingen, og Magdeburg. Vart þarf að fjölyrða um það hversu gaman það væri að fá slíkt stórlið í heimsókn í Krikann. Já, viðureign Kristjáns Arasonar og Guðmundar Guðmundssonar yrði án alls vafa fróðleg.

FH-ingar, flykkjumst að á sunnudaginn og styðjum okkar menn til sigurs! Leikurinn verður að sjálfsögðu leikinn í Mekka handboltans á Íslandi, Kaplakrika, og hefst hann kl. 19:30.

Við erum FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?