Upphitun: FH - Fram, N1-deild karla
29.2.2012
Steingrímur Gústafsson
Það er engin smá viðureign sem við FH-ingar fáum í fyrsta leik eftir tveggja vikna pásu vegna bikarhelgarinnar sem fór fram um liðna helgi. Feikisterkt lið Framara kemur í Krikann á morgun, fimmtudag og hefst leikurinn klukkan 19:30. FH hefur ekkert spilað í hálfan mánuð en Fram var í úrslitum Eimskipsbikarsins, þar sem þeir biðu lægri hlut gegn Haukum. Síðasti leikur FH fyrir hlé var í deildinni gegn Aftureldingu og sá leikur vannst með einu marki í Kaplakrika, 26-25. Leikurinn gegn Fram á morgun er gríðarlega mikilvægur, því deildin er hnífjöfn. Taktu því daginn frá núna, mættu og leggðu þitt af mörkumtil að sigur vinnist.

Fram
Fram hefur reynst FH erfitt í vetur en Framarar hafa sigrað báða deildarleikina gegn FH, fyrst í Kaplakrika og svo í Safamýrinni. Liðið komst í úrslit Eimskipsbikarsins og er í toppbarátunni í deildinni. Fram hefur endurheimt þá Róbert Aron Hostert og Jóhann Gunnar Einarsson og styrkir það liðið gríðarlega mikið enda um gríðarlega góða leikmenn að ræða sem hafa verið mjög drjúgir fyrir Fram í vetur.
Ef rýnt er í mannskap Fram er ekki auðvelt að sjá hver sterkasti maður þeirra er enda mjög góðir leikmenn í öllum stöðum. Eins og áður segir eru skytturnar Róbert Aron Hostert og Jóhann Gunnar Einarsson mjög góðir fyrir utan og í búrinu eru þeir Magnús Gunnar Erlendsson og Sebastian Alexandersson en þeir hafa varið vel í vetur og eru gríðarlega reynslumiklir markverðir. Ægir Hrafn Jónsson, línumaður Fram er einnig mjög sterkur en hann var valinn í landsliðið fyrr á tímabilinu. Ekki má gleyma Ingimundi Ingimundarsyni sem hefur sýnt það að hann er góð skytta fyrir utan. Hægri hornamaður Fram, Einar Rafn Eiðsson hefur átt góða leiki gegn FH og hafa góðar gætur á honum í leiknum. Þá er ónefndur Sigurður Eggertsson sem hefur ávallt átt stórleiki gegn FH og verður því að stoppa hann.
Fyrri viðureignir liðanna
FH og Fram mættust í fyrstu umferð N1-deildar karla þetta tímabilið. Í þeim leik unnu Framarar þægilegan 5 marka sigur, 23-28 og Fram vann einnig heimaleik sinn, þá með einu marki .
26.september 2011, FH - Fram, 23-28
17.nóvember 2011, Fram - FH, 34-33

FH
FH situr í 2. sæti deildarinnar með 21 stig að fimmtán leikjum loknum. Síðasti leikur sem FH spilaði í deildinni var gegn Aftureldingu á heimavelli 16. febrúar. Sá leikur vannst með einu marki, 26-25.
Allt þarf að vera í toppstandi á morgun gegn sterku liði Fram; markvarslan og varnarleikurinn verða að vera tipp topp og sóknarleikurinn þarf að ganga smurt fyrir sig eigi sigur ggen Fram að vinnast.
Ragnar Jóhannsson hefur verið að æfa á fullu en óvíst er með þátttöku Ara Magnúsar Þorgeirssonar í leiknum en hann glímir við meiðsli sem hann hlaut í leiknum gegn Aftureldingu.
Strákarnir þurfa virkilega á stuðningi að halda í þessum leik, lítið er eftir að deildinni og hún er hnífjöfn og það er ekki sjálfsagt að liðið tryggji sér sæti í úrslitakeppninni. Því vil ég hvetja þig, kæri FH-ingur, að að koma með gömlu góðu FH-geðveikina í stúkuna á morgun í Kaplakrika og fjölmennum!!! Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 19:30 en húsið opnar klukkutíma fyrr, 18:30 og verður þá byrjað að grilla hamborgara ofan í liðið!
Við erum FH!