Vís

Upphitun: FH - Akureyri, Eimskipsbikar karla

12.11.2011 Árni Freyr Helgason

 FH-ingar hefja keppni í Eimskipsbikarnum þetta árið á sunnudaginn, en þá taka þeir á móti liði Akureyrar í Krikanum. Er þessi leikur í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar. Má búast við hörkuviðureign tveggja góðra liða, sem börðust eins og kunnugt er um Íslandsmeistaratitilinn síðasta vetur.

Akureyri

Akureyringar sitja eins og er í 6. sæti N1-deildar karla með 5 stig eftir 7 leiki, stigi á eftir Val sem situr í 5. sæti deildarinnar en stigi á undan Aftureldingu í 7. sætinu. Hafa Akureyringar unnið tvo leiki það sem af er móti en tapað fimm leikjum.

 

Eins og sést hér að ofan hefur Akureyringum ekki gengið sem skyldi í deildinni hingað til eftir frábært tímabil í fyrra. Mörgum kemur það á óvart, enda vel mannað lið sem er á góðum degi eitt af allra bestu liðum deildarinnar. Gengi liðsins það sem af er á sér þó eðlilegar skýringar, margir af lykilmönnum liðsins hafa átt við meiðsli að stríða og þar af leiðandi hafa Akureyringar ekki getað stillt upp sínu sterkasta liði eins oft og þeir hafa viljað.

 

En nú eru þessir menn mættir til leiks á ný. Burðarásarnir Heimir Örn Árnason og Hörður Fannar Sigþórsson, sem báðir hafa verið meiddir upp á síðkastið, hafa náð fullum bata og þá er hornamaðurinn Daníel Einarsson einnig leikfær á ný. Reyndar voru allir þessir menn komnir til baka er Akureyringar mættu Gróttu í gærkvöldi (fimmtudaginn 10. nóvember). Greinilegt er að endurkoma þeirra hefur haft góð áhrif á Akureyringa, en þeir unnu verðskuldaðan 15 marka sigur á lærisveinum Guðfinns Kristmannssonar. Miðað við þau úrslit er allt eins hægt að búast við því að brátt verði Akureyringar komnir í efri hluta deildarinnar, sem er klárlega þar sem þeir eiga heima miðað við getu.

 

Sem fyrr eru margir sterkir póstar í liði norðanmanna. Sveinbjörn Pétursson er einn allra besti markvörður deildarinnar, eins og hann hefur margoft sýnt, og getur hann reynst ansi drjúgur fyrir Akureyringa detti hann í gang. Oddur Grétarsson skorar ávallt sinn skerf af mörkum í vinstra horninu, og er þá oft á tíðum sérlega drjúgur í hraðaupphlaupunum. Frændurnir Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson eru öflugir í skyttustöðunum, báðir eru þeir feikilega hæfileikaríkir ungir strákar sem geta ollið verulegum skaða séu þeir upp á sitt besta. Heimir Örn Árnason er heilinn í liðinu, leikstjórnandi af bestu gerð sem getur bæði skotið og búið til færi fyrir félaga sína. Síðast en ekki síst ber að nefna fyrrum leikmann okkar FH-inga, Bjarna Fritzson, sem er markaskorari af guðs náð og hefur nú þegar skorað 50 mörk í deildinni, eða að meðaltali 7 mörk í leik. Skoraði hann heil 12 mörk í leik liðsins gegn Gróttu og er víst að FH-ingar verða að hafa góðar gætur á honum ætli þeir sér að vinna sigur í Krikanum á sunnudaginn.

 

Fyrri leikir liðanna

Liðin tvö þekkja hvort annað væntanlega inn og út, enda mættust þau óteljandi oft á síðasta keppnistímabili. Þar að auki hafa liðin nú þegar mæst innbyrðis á þessari leiktíð. Fór sá leikur fram á Akureyri þann 29. september síðastliðinn og báru FH-ingar sigur úr býtum, 20-24, í leik sem var jafn og spennandi lengst af. Fyrirliði okkar FH-inga, Baldvin Þorsteinsson, var markahæstur með 8 mörk en næstur honum kom Örn Ingi Bjarkason með 5 mörk.

 

FH

FH-ingum hefur gengið prýðilega það sem af er leiktíð og sitja í 3. sæti N1-deildar karla með 9 stig, stigi á eftir toppliðum Fram og Hauka. FH-ingar eiga þó inni leik við Hauka, en viðureign liðanna tveggja sem átti að fara fram á fimmtudagskvöld var frestað, eins og alþjóð veit.

 

Liðinn er góður tími síðan FH-ingar léku síðast leik, en síðasti leikur FH-ingar var gegn Aftureldingu í Varmá þann 27. október síðastliðinn. Þreyta ætti því ekki að há lið FH-inga og ættu allir að vera í góðu standi fyrir leikinn gegn Akureyri, sem verður að öllum líkindum hörkuleikur. Þó er vitað að Ragnar Jóhannsson og Magnús Óli Magnússon verða hvorugur með í leiknum, enda báðir frá fram að áramótum.



Undirritaður býst við FH-ingum öflugum á sunnudaginn. Hafi þeir einhvern tímann ástæðu til að vinna leik, þá er það nú. Fyrir það fyrsta er um bikarleik að ræða, og ljóst er að allir bikarleikir eru úrslitaleikur og einnig að alla langar í Höllina – þar ættu FH-ingar ekki að vera undantekning. Í öðru lagi er andstæðingurinn Akureyri. En fyrst og fremst tel ég að FH-ingar vilji bera sigur úr býtum fyrir okkar látna félaga, Hermann Fannar Valgarðsson. Hermann var hinn sanni FH-ingur, ávallt reiðubúinn að leggja félagi sínu lið og styðja það í gegnum súrt og sætt. Hermann var svo sannarlega FH.

 

Kæru FH-ingar, leikurinn á sunnudaginn er ekki bara leikur. Hann er virðingarvottur. Mættu í Kaplakrika á sunnudaginn, styddu við þitt lið og vottaðu á sama tíma einum af okkar dyggasta félagsmanni virðingu þína. Leikurinn hefst kl. 15:45, en nóg verður um að vera fyrir leik að vanda.

Við erum FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?