Umfjöllun: Frábær sigur gegn Akureyri í bikarnum
13.11.2011
steingrimur
Okkar menn unnu frábæran sigur á Akureyringum í dag í Kaplakrika. Leikurinn endaði 34-21 fyrir FH. FH er því komið í 8-liða úrslit Eimskips bikarsins eftir sigurinn.
Fyrliðinn Baldvin Þorsteinsson lék ekki með FH vegna meiðsla á aftanverðu læri. Þá kom Pálmar Pétursson inn í hópinn í markið hjá FH fyrir Sigurð Örn. Daníel Andrésson fór hins vegar á kostum í leiknum og varði 27 skot. Ólafur Gústafsson, Þorkell Magnússon og Daníel Andrésson voru bestu leikmenn okkar í dag.
Sjá umfjöllun Sport.is hér að neðan:
FH-ingar unnu í dag afar sanngjarnan og sannfærandi sigur á Akureyringum í stórleik 16-liða úrslita Eimskipsbikarkeppni karla í handknattleik, 34-21 .
FH-ingar gerðu í raun út um leikinn strax í fyrri hálfleik, höfðu forystu í hálfleik 16-9, og slógu allar endurkomutilraunir norðanmanna síðasta hálftímann niður með tiltölulega auðveldum hætti.
FH 34-21 Akureyri (16-9)
Leikur Íslandsmeistaranna og deildarmeistaranna var í ágætu jafnvægi á upphafsmínútunum, markverðir liðanna voru í ágætum ham, varnarleikur beggja sterkur og allt útlit fyrir jafnan og spennandi leik.
Það snarbreyttist þó eftir nokkurra mínútna leik, Akureyrarliðið hrökk í baklás á meðan FH-ingar héldu sínum takti, það fáa sem lak í gegnum FH-vörnina og/eða Akureyringar höfðu dug til að koma á markið varði Daníel og norðanmönnum var algjörlega fyrirmunað að skora. Depurðin í sóknarleiknum smitaði varnarleikinn, sem FH-ingar leystu yfirleitt ljómandi vel og á köflum virtust heimamenn nánast geta skorað að vild. Ólafur Gústafsson hlóð í nokkrar sérútbúnar bombur, Örn Ingi, Hjalti og Andri léku allir vel og þá er ekki að sökum að spyrja. FH-ingar byggðu í rólegheitunum upp nokkur örugga forystu og voru komnir langleiðina með að klára leikinn strax í hálfleik, en þá var staðan 16-9 fyrir heimamenn.
Akureyringar sýndu dug og þor framan af síðari hálfleik og þá fóru menn loksins að taka af skarið, láta vaða á FH-vörnina og gera eitthvað meira en að sýna ágætlega útfærðar gabbhreyfingar. Norðanmenn hjuggu í forystu FH og rétt í þann mund sem síðari hálfleikur var að verða hálfnaður virtust þeir ætla að gera alvöru úr þessu áhlaupi. FH-ingar virkuðu hins vegar sallarólegir yfir þessu öllu saman, þeir hertu lítillega á vörninni hjá sér og slógu taktinn aftur úr leik Akureyringa með þeim árangri að þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn ellefu mörk. Sjálfstraustið lak af FH-ingum á þessum kafla, enda staðan þægileg og úrslitin nánast ráðin.
FH-ingar léku ljómandi vel í þessum leik, virtust ekki hafa miklar áhyggjur af fjarveru Baldvins Þorsteinssonar sem enn glímir við smávægileg meiðsli, og það segir sig nokkurn veginn sjálft að sigur af þessari stærðargráðu hlýtur að vera sanngjarn. FH-vélin mallaði án þess að hiksta, menn kunna sín hlutverk og sín takmörk afskaplega vel og hafa það að leiðarljósi að liðsheildin nær alla jafna lengra en einstaklingsframtakið.
Næsti leikur FH-liðsins er gegn Fram í Safamýrinni næstkomandi fimmtudag (17. nóvember). Meira um þann leik síðar.
Viðtal við Einar Andra Einarsson (Sport.is)
http://www.sport.is/sportvarp/2011/11/13/sportvarp-einar-andri-einarsson-fh-10/
Viðtal við Daníel Andrésson (Sport.is)
http://www.sport.is/sportvarp/2011/11/13/sportvarp-daniel-freyr-andresson-fh/
Viðtal við Ólaf Gústafsson (Vísir.is)
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP7418?fb_ref=top&fb_source=home_oneline
Viðtal við Einar Andra Einarsson (Vísir.is)
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP7416
Viðtal við Einar Andra Einarsson (Mbl.is)
http://mbl.is/sport/handbolti/2011/11/13/einar_andri_flottur_leikur_hja_strakunum/