Umfjöllun: Frábær sigur á Gróttu í kvöld
20.10.2011
steingrimur
Grótta kom í heimsókn í Krikann í kvöld í fimmta leik tímabilsins. Leikurinn var jafn framan af en í stöðunni 5-5 skoruðu FH-ingar 9 mörk í röð gegn 0 frá Gróttu og staðan var þá orðin 14-5 fyrir FH. Staðan í hálfleik var svo 16-6 fyrir okkur mönnum en markahæsti maðurinn í hálfleik var fyrirliðinn Baldvin Þorsteinsson. En maður leiksins, Daníel Andrésson var búinn að verja 15 skot í fyrri hálfleiknum þar af tvö vítaköst.
Síðari hálfleikurinn var ekkert slakari en sá fyrri og menn hafa lært af síðustu leikjum þar sem gefið var eftir gegn Initia Hasselt í EHF-keppninni í síðari hálfleiknum. Vörnin var áfram góð í síðari hálfleiknum og Ólafur Gústafsson sem tekinn var úr umferð allan leikinn reif sig lausan og skoraði fimm mörk í síðari hálfleiknum.
Okkar menn leystu það vel að spila án tveggja lykilmanna ern sem kunnugt er er Ragnar Jóhannsson hægri skytta meiddur á hné og gengur um á hækjum en hann fór í aðgerð í síðustu viku, sem gekk vel. Þá var Hjalti Pálmason ekki með FH í kvöld en hann er í vinnuferð í Frakklandi. Það var ánægjulegt að sjá leikmenn sem fengu tækifærið í síðari hálfleik. Þeir nýttu það vel. Atli Hjörvar Einarsson línumaðurinn sem gekk til liðs við FH frá Selfossi fyrir leiktíðina kom inná og skoraði sitt fyrsta mark fyrir FH. Ísak Rafnsson skoraði eitt mark fyrir FH auk þess að eiga flottar sendingar inná línu. Magnús Óli Magnússon, ungur FH-ingur sem hefur verið að bæta sig gríðarlega mikið undanfarið fékk tækifærið í kvöld en hann varð hins vegar fyrir áfalli og var fluttur út úr húsi á börum inn í sjúkrabíl. Hann fékk slæmt högg á hnéð og Rósmundur Magnússon muggari sagði þetta á facebook: "Aðalmálið eftir mjög svo auðveldan sigur á mjög svo slöku liði frá Seltjarnarnesi eru ekki stigin tvö. Aðalmálið sem maður hugsar eftir þennan leik er hvort að einn af okkar allra efnilegustu leikmönnum verði lengi frá !!Magnús Óli meiddist illa á hné í fyrri hálfleik og var fluttur með sjúkrabíl mjög kvalinn,ekki oft sem maður sér börurnar frá 1991 notaðar.Maggi við Muggarar sendum þér hlýja strauma um skjótan bata !!"
Leikurinn endaði svo 31-19 fyrir FH og markaskorara má sjá hér:
Mörk FH: Baldvin Þorsteinsson 7/1, Andri Berg Haraldsson 5/3, Ólafur Gústafsson 5, Örn Ingi Bjarkason 5, Ari Magnús Þorgeirsson 3, Halldór Guðjónsson 2, Atli Hjörvar Einarsson , Ísak Rafnsson 1. Varin skot: Daníel Andrésson 21/3, Sigurður Örn Arnarsson 1.
Næsti leikur er 27. okttóber gegn Aftureldingu á útivelli, meira um þann leik síðar.