Vís

Til hamingju FH-ingar

5.5.2011 Benedikt Gunnar Ívarsson

Til hamingju allir FH-ingar með Íslandsmeistaratitil meistaraflokks karla í handbolta. 

Dagurinn í gær fer í sögubækurnar sem dagurinn þegar FH varð íslandsmeistari eftir 19 ára bið. 

Dagurinn í gær fer líka í sögubækurnar sem dagurinn þegar áhorfendametið frá 1992 féll. 

Dagurinn í gær var dagurinn þegar allir FH-ingar svöruðu kalli og fylltu Kaplakrika.

Til hamingju leikmenn, starfsmenn, sjálfboðaliðar, áhorfendur og stuðningsmenn. 
Þetta var dagurinn okkar.

TIL HAMINGJU FH-INGAR OG TAKK FYRIR STUÐNINGINN.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?