Vís

Þrír FH-ingar í U-19 ára landsliðshópnum

20.9.2010 Orri Þórðarson
Þrír FH-ingar þeir Brynjar Ásgeir Guðmundsson, Einar Karl Ingvarsson og Helgi Valur Pálsson verða í eldlínunni með með landsliði Íslands skipað leikmönnum 19 ára og yngri en þeir leika vinaáttulandsleik gegn jafnöldrum sínum frá Norður-Írlandi á Sandgerðisvelli kl. 16 í dag. Þjóðirnar mætast aftur á Fylkisvelli næstkomandi miðvikudag.

Leikirnir eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM sem fer fram í október og verður leikið í Wales.  Auk heimamanna verður þar leikið gegn Kasakstan og Tyrklandi.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?