Tap í báðum leikjum í forkeppni Meistaradeildarinnar í Ísrael
4.9.2011
SR
Strákarnir okkar töpuðu báðum leikjunum sínum í forkeppni Meistaradeildarinnar út í Ísrael, en þeir héldu utan á fimmtudaginn síðastliðinn og kepptu leik á laugardeginum og í dag.
Á laugardaginn tapaðist leikur gegn norsku meisturunum Haslum HK 36-29 og má sjá umfjöllun Sport.is
hér fyrir þann leik.
Í dag tapaðist svo leikur gegn ísrealsku meisturunum á grátlegan hátt 42-43. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 35-35 og skv. reglum EHF í forkeppni Meistaradeildarinnar þá skal haldið beint til vítakastkeppni og þar biðum við FH-ingar lægri hlut en framlengja þurfti vítakastkeppnina því jafnt var eftir fyrstu umferðina. Umfjöllun frá Sport.is má lesa um leikinn
hér.
Þetta þýðir samt ekki að við FH-ingar séum dottnir út fyrir fullt og allt, en þetta þýðir hins vegar að við munum ekki leika í sterkustu deild heims, Meistaradeildinni en við munum þó taka þátt í EHF-bikarnum og þar munum við mæta annað hvort Dudelange frá Lúxemborg eða Initia Hasselt frá Belgíu í 2.umferð
EHF-bikarkepnninna og fyrri leikurinn fer fram
í Kaplakirka 8. eða 9.október og þann
síðari viku síðar ytra fyrir.
Vonandi að ferðin hafi gefið strákunum mikið og þeir geti nýtt sér það í N1-deildinni sem byrjar 26. september. VIð FH-ingar byrjum á heimaleik gegn Fram 26. september.
Ferðasaga er væntanleg frá strákunum annað hvort í FH-blaðið sem kemur út fyrir leiktíðina eða hér inná heimasíðu félagsins, en það ákvarðast af lengd sögunnar.