Tap gegn Haukum
28.4.2010
Davíð A. Stefánsson
Í gærkvöldi fór fram leikur FH og Hauka á Ásvöllum í 4. umferð Lengjubikars kvenna.
Leiknum lauk með 2-0 sigri Hauka en mörkin komu bæði á síðasta stundarfjórðunginum. Það var líkt með báðum mörkunum að þau koma eftir mistiök í vörn FH. Sonja Guðmundsdóttir og Sara Jordan skoruðu mörk Hauka.
FH-stelpurnar náðu ekki að sýna sínar bestu hliðar og það var mál manna að deyfð væri yfir liðinu. Allan kraft vantaði í miðjuspilið og sóknina.
Síðasti leikur FH er gegn ÍBV á frídegi verkalýðsins, þann 1. Maí, næstkomandi kl. 14:00.