Vís

Tap gegn Grindavík

2.6.2010 Davíð A. Stefánsson

FH stelpurnar máttu sætta sig við tap í 5. umferð Peps-deildarinnar í gærkvöld. Þá mættu þær liði Grindavíkur í Grindavík en leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna. Mörkin komu á ´25 og ´63 mínútu.

Byrjunarlið 5-4-1

Birna Berg

Sigga

Elsa(Halla)-Bella-Sara-Ástrós

Dagmar-Lilliana-Silja-Margrét (Sigrún Ella)

Sandra(Aldís)

Grindavík var sterkari aðilinn í leiknum sem annars þótti nokkuð bragðdaufur.  Þær gáfu lítil færi á sér og refsuðu grimmilega. Sem fyrr var FH í vandræðum með sóknarleikinn og náði ekki að skapa sér teljandi færi. Í síðari háfleik breytti liðið um leikskipulag og fór í 4-4-2. Við það kom meiri broddur í sóknir liðisns en dugði ekki til.

Næsti leikur FH er á heimavelli gegn Þór, sunnudaginn 6. júní kl. 16:00


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?