Tap í háspennuleik

21.2.2009 Heiðar Arnarson

N1 deildin, fimmtudagurinn 19. febrúar 2009, kl 19:30


FH tapaði í gær fyrir HK í þriðja sinn í vetur. Lokatölur urðu 25-23 fyrir HK en staðan var 13-9 heimamönnum í vil í hálfleik. HK hafði yfirhöndina lengst af í leiknum en FH gafst aldrei upp og komst yfir þegar lítið var eftir af leiknum. HK hafði þetta þó á seiglunni í lokin.

Fyrri hálfleikur

FH var að elta HK í raun alveg frá byrjun. Varnarleikurinn var hriplekur fyrsta korterið og markvarslan var í raun engin. Sóknarleikurinn var ögn skárri en oft fálmkenndur og passívur og menn nýttu illa færin sem þeir fengu, skutu ansi oft í markvörð HK manna. HK komst í 5-3, fóru síðan í 8-5 og staðan var 11-6 eftir 20 mínútur. Í þeirri stöðu kom ekki mark í heilar 5 mínútur þar sem bæði lið léku slakan sóknarleik. HK leiddi síðan í hálfleik 13-9.

Seinni hálfleikur

HK hélt áfram að leiða leikinn með þetta 3-4 mörkum í seinni hálfleik. FHingar héldu þó þolinmæði og varnarleikurinn fór að hrökkva í gang ásamt því að markvarslan skánaði til muna. FH átti síðan mjög góðan leikkafla um miðjan seinni hálfleik og fór úr því að vera undir 17-13 í að jafna 19-19. FH komst svo yfir í fyrsta sinn í leiknum 20-21 þegar um 7 mínútur voru eftir. Þegar hér var komið við sögu var allt vitlaust á pöllunum og frábærir FH áhorfendur var sannarlega áttundi maður FHinga á vellinum. HK jafnaði og FH fór síðan illa að ráði sínu í næstu sókn. HK skoraði úr hraðaupphlaupi. Leikurinn var síðan í járnum og þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum var staðan 23-23. FH liðið vann boltann og átti möguleika á að skora úr hraðaupphlaupi en menn fóru illa að ráði sínu. Í staðinn setti HK mark í næstu sókn, 24-23. FH átti ótímabært skot í næstu sókn og HK átti síðasta orðið, lokastaða 25-23.


Niðurstaða

Því miður lenti sigurinn HK megin í kvöld. Allt gat gerst á lokasprettinum og með örlítilli heppni og aðeins meiri skynsemi hefði sigurinn getað orðið okkar. Hundfúlt auðvitað að ná ekki stigi af HK mönnum í vetur og því miður höfðum við ekki svör við þeirra leik þetta tímabil. Það er samt nóg eftir af móti og allt stefnir í tvísýna baráttu um 4. sætið. FH hafði enn og aftur sætaskipti við Fram sem sigraði Stjörnuna á sama tíma.

Bjarni Fritz var okkar besti maður í gær, setti 8 mörk og Ási og Össi áttu ágætis spretti. Maggi kom svo til í seinni háfleik. Fókusa á næsta leik drengir sem er gegn Stjörnunni og nú er mikilvægt að ná upp góðri stemmningu fyrir lokasprettinn í deildinni.

Markaskorarar (mörk/skot(víti)

Bjarni Fritzson 8/14(2)

Örn Ingi Bjarkason 4/8

Ásbjörn Friðriksson 3/5

Guðmundur Pedersen 3/5

Sigurður Ágústsson 1/1

Jónatan Jónsson 1/1

Sigursteinn Arndal 1/1

Hjörtur Hinriksson 1/2

Benedikt Kristinsson 1/3

Hermann Ragnar Björnsson 0/2

Markvarsla (varið/skot á sig(víti)

Hilmar Þór Guðmundsson 1/12

Magnús Sigmundsson 8/22

 

N1 deildin

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Valur 15 9 3 3 415:358 57 21
2. Haukar 14 10 0 4 408:352 56 20
3. Fram 16 8 3 5 445:439 6 19
4. FH 16 8 2 6 478:470 8 18
5. HK 16 7 3 6 426:434 -8 17
6. Akureyri 16 7 1 8 412:437 -25 15
7. Stjarnan 16 3 3 10 393:434 -41 9
8. Víkingur 15 2 1 12 375:428 -53 5


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH