Tap fyrir Val

14.3.2009 Heiðar Arnarson


   

N1 deild karla, Kaplakriki, fimmtudagurinn 12. mars 2009, kl 19:30


FH varð að sætta sig við tap 27-32 gegn Val á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og liðin skiptust á að hafa forystu. Valsmenn sýndu síðan mátt sinn og megin í seinni hálfleik og sigruðu eins og áður segir nokkuð örugglega. Fjöldi manns lagði leið sína í Krikann en frítt var á leikinn í boði Byrs, aðalstyrktaraðila FH.

Fyrri hálfleikur

FHingar voru klárlega vel undirbúnir þegar flautað var til leiks og allt annað að sjá til leikmanna en hefur verið í síðustu tveimur leikjum. Menn voru áræðnari í sókn og létu finna fyrir sér í vörn. Jafnt var á öllum tölum og skiptust liðin á að hafa forystu. Einhvern veginn fékk maður þó á tilfinninguna að Valsmenn hefðu minna fyrir sínum mörkum og oft einum of einfalt fyrir þá að skora. Engu að síður fín framför og menn eins og Aron og Bjarni að spila vel, Steini og Pálmi voru að spila fínan varnarleik saman á miðjunni þó svo að léttleiki og snerpa hafi ekki verið þeirra sterkasta vopn, þá fremur reynsla og styrkur. Staðan í hálfleik 14-15 Val í vil.

 

Seinni hálfleikur

Fljótt í seinni hálfleik fór þetta að breytast. Valur náði fljótt þriggja marka forystu og smátt og smátt juku þeir muninn. Gæði sóknarleiks FH minnkaði, menn misstu hreyfanleikann og yfirvegunina og áfram virtist mun erfiðara að brjóta upp Valsvörnina heldur en FH vörnina. FH liðið nýtti illa sín færi oft einn á móti einum og má segja að Ólafur markvörður hafi gert gæfumuninn fyrir Valsmenn. Valsmenn breyttu stöðunni úr 18-20 í 21-28 þegar 10 mínútur voru eftir og lítil von virtist vera á sigri okkar manna. FH liðið réð ekki við þennan mun en klóruðu örlítið í bakkann og endaði leikurinn eins og áður sagði 27-32.

 

Niðurstaðan

Eftir miklar framfarir í fyrri hálfleik frá síðustu tveimur leikjum hrakaði leik liðsins töluvert í seinni hálfleik, fátt virtist ganga upp, menn pirruðust og yfirvegunin í sóknarleiknum var lítil enda brenndu menn á fjölda dauðafæra í gær. FH er sem stendur í 5. sæti, 2 stigum á undan Akureyri og þrem stigum á eftir Fram. Tveir leikir eru eftir af móti, einmitt gegn Fram 29. mars og gegn Víkingi 5. apríl. Fram á síðan leik gegn Akureyri fyrir norðan 5. apríl.

 

Úrslitakeppnin enn raunhæf

Möguleikinn á úrslitakeppnissæti er enn til staðar. FH þarf að vinna Fram og Víking og ná 22 stigum og Fram þarf að gera jafntefli eða tapa gegn Akureyri í síðasta leik. Fram þarf að vera með 21 eða 22 stig, en ef bæði lið enda með 22 stig myndi FH ná 4. sætinu vegna betri árangurs í innbyrðis viðureignum liðanna í vetur. Þetta er því engan veginn búið og möguleikinn enn til staðar.

 

Markaskorarar:

Bjarni  9/11(4)

Aron 6/14

Örn 2/5

Sigursteinn 2/2

Ásbjörn 2/3

Sigurður 2/6

Ólafur 1/1

Benedikt 1/2

Hjörtur 1/2

Guðmundur 1/5

 

N1 deildin

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 19 15 0 4 541:462 79 30
2. Valur 19 12 3 4 533:452 81 27
3. HK 19 9 4 6 504:507 -3 22
4. Fram 19 9 3 7 528:526 2 21
5. FH 19 8 2 9 551:556 -5 18
6. Akureyri 19 7 2 10 486:519 -33 16
7. Stjarnan 19 5 3 11 476:513 -37 13
8. Víkingur 19 2 1 16 472:556 -84 5

 

Stuðningur

Frítt var á leikinn á fimmtudaginn í boði Byrs Sparisjóðs. FH áhangendur svöruðu kallinu og ekki leit út fyrir annað en að liðsmenn Hauka væru einnig mættir til okkar í norðurhlutann til að hvetja erkifjendur sína áfram. Hátt í 1000 manns mættu og myndaðist frábær stemmning. Stuðninginn þurfum við áfram því næst liggur leiðin í Safamýrina í lok mánaðarins en þar verður klárt uppgjör um hverjir ætla sér að ná 4. sætinu sem bæði lið sækjast eftir. Mætum öll!

Áfram FH



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?