Svart og hvítt gegn Akureyri

13.2.2009 Heiðar Arnarson

                  

38-32
N1 deildin, fimmtudagurinn 12. febrúar 2009, kl 19:30


FH sigraði Akureyri í miklum markaleik, 38-32 í Kaplakrika í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 18-19 Akureyri í vil. Hálfleikar þessa leiks voru gjörólíkir og ljóst að föðurleg hálfleiksræða þjálfara vor hafði sín áhrif þróun leiksins.

Fyrri hálfleikur

Leikurinn var hnífjafn til að byrja með og mikið skorað. Hermann Ragnar stimplaði sig verulega inn og skoraði góð mörk fyrir utan og Örn Ingi var mjög ógnandi og aggressívari heldur en hann hefur áður verið. Aftur á móti var vörnin hriplek og markvarslan eftir því. Einhver doði einkenndi liðið í fyrri hálfleik og menn virtust ekki vera á tánum. FH komst þó í 11-9 og 12-10 en Akureyri breytti stöðunni í 13-15. Þeir leiddu síðan með þetta 2-3 mörkum en FH náði að minnka muninn niður í 1 mark fyrir hálfleik 18-19.

 

Seinni hálfleikur

Það var klárt mál að FH liðið myndi ekki gera miklar rósir með þeirri spilamennsku sem það hélt uppi í fyrri hálfleik og alveg ljóst að menn þyrftu að fara að taka á málunum í varnarleiknum. Þjálfarinn kallaði eftir þessu í hálfleiknum og leikmenn voru ekki lengi að bregðast við með Pálma Hlöðversson í fararbroddi, en hann var settur á skýrsluna í hálfleik. Pálmi batt þetta vel saman, alvöru barátta komst í alla sem einn og hraðaupphlaupin fóru að detta inn í hrönnum ásamt því að markvarslan komst í eðlilegt horf. FH breytti stöðunni úr 18-19 í 25-21 á 7 mínútum og þá var ekki aftur snúið. FH leiddi með þetta 2-4 mörkum út seinni hálfleikinn. Allt annað var að sjá til liðsins og menn höfðu mun meira gaman af þessu. Árni Sigtryggsson örvhenta skyttan sterka hjá Akureyri hafði skorað heil 7 mörk í fyrri hálfleik en náði ekki að setja næsta mark fyrr en um 10 mínútur voru eftir af leiknum. FH rak síðan smiðshöggið undir lokin og fóru úr stöðunni 32-29 í 35-29 og sigruðu síðan 38-32.

 

Niðurstaðan

Eftir að hafa fengið allt of mörg mörk á sig í fyrri hálfleik, heil 19, tóku menn sig á og skelltu almennilega í lás og héldu áfram góðum sóknarleik. FH skoruði 20 mörk gegn 13 í þeim seinni. Menn virtust þurfa smá tíma til þess að ná áttum og ef til vill þurftu menn aðeins að koma hausnum í gang eftir tvö erfið töp nýlega. Menn leystu vel úr málum þegar sýndist vera komið í óefni og týpískur vinnusigur í höfn.

Hermann Ragnar Björnsson var sprækur í byrjun leiks, skoraði 3 fyrstu mörk FH en hafði hægar um sig í seinni hálfleik. Bjarni Fritzson var mjög ógnandi og skoraði nokkur frábær mörk fyrir utan ásamt því að eiga fjölda stoðsendinga og fiska nokkur víti. Örn Ingi Bjarkason átti mjög fínan leik, einn sá besti sem hann hefur leikið í vetur en þarf að vanda skot sín betur í dauðafærum því drengurinn hefur gríðarmikinn talent og á gott með að koma sér í fín færi og finna smugur. Aron kemur með gríðarlega ógnun inn í leikinn undir lok seinni hálfleiks og enginn ræður við drenginn í þessum ham. Mikilvægt fyrir FH liðið að hann virðist vera að jafna sig á meiðslum sem hafa hrjáð hann. Svo verður að segjast að Pálmi Hlöðversson umbreytti töluvert varnarleiknum og kom inn með mikla stemmningu sem smitaði útfrá sér. FH fikraði sig upp töfluna með sigrinum en með ósigri Fram gegn HK höfðum við sætaskipti við Safamýrarpilta, erum með 18 stig í 3. sæti en Fram 17 stig.

 

Markaskorun (mörk/skot(víti)

Bjarni Fritzson 8/10(3)

Aron Pálmarsson 6/8

Guðmundur Pedersen 6/10

Hermann Ragnar Björnsson 5/8

Örn Ingi Bjarkason 5/9

Sigurður Ágústsson 3/3

Ásbjörn Friðriksson 3/4

Hjörtur Hinriksson 1/1

Sigursteinn Arndal 1/1

 

Varin skot (varið/skot á sig/(víti varið))

Magnús Sigmundsson 13/36

Hilmar Þór Guðmundsson 3/12

 

Staðan í N1 deildinni

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Valur 15 9 3 3 415:358 57 21
2. Haukar 14 10 0 4 408:352 56 20
3. FH 15 8 2 5 455:445 10 18
4. Fram 15 7 3 5 412:414 -2 17
5. HK 15 6 3 6 401:411 -10 15
6. Akureyri 15 6 1 8 387:417 -30 13
7. Stjarnan 15 3 3 9 368:401 -33 9
8. Víkingur 14 2 1 11 355:403 -48 5

 

Aðrir leikir

Fim. 12.feb.2009 19.30 Vodafone höllin Valur - Stjarnan 25-24 (12-13)
Fim. 12.feb.2009 19.30 Framhús Fram - HK 29-32 (13-16)

 

Stuðningur

Ágætur fjöldi fólks mætti í Krikann í gær og myndaðist fínasta stemmning í seinni hálfleik þegar kallað var eftir honum. Við óskum eftir jafnvel fleira fólki í næstu leikjum en ómetanlegt er að hafa eins góða stuðningsmenn á bak við sig en FH stuðningsmenn. HK er það næst en FH á harma að hefna eftir 2 tapleiki gegn þeim í vetur. Leikið verður í Digranesi en skýrt markmið er sigur og ekkert annað á fimmtudaginn kemur. Með því stígum við enn stærra skref í átt að úrslitakeppni og hver veit hversu nálægt toppnum við yrðum!!!

 

Áfram FH!!!!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH