Vís

Stutt spjall við Örnu aðstoðarþjálfara

11.5.2010 Davíð A. Stefánsson

 

Mfl. kv. Tók við verðlaunum fyrir sigur í Lengjubikarnum.  Myndin hér að ofan var tekin af því tilefni

Arna Steinssen hefur aðstoðað Jón Þór með liðið frá því að hann tók við því síðla árs 2007.  Arna er íþróttaáhugamönnum ekki ókunn en hún stýrði KR á sínum tíma auk þess að hafa leikið fjölda landsleikja í handbolta og fótbolta.

Hvað er að frétta af Örnu Steinssen? 

Ég er bara kát og það er mikil tilhlökkun hjá mér fyrir fyrsta leik hjá mfl.kv….búnar að puða í allan vetur og nú er komið að því!

Hvað ertu að bralla svona dags daglega?

Ég er að kenna íþróttir í Verzlunarskóla Íslands og sinna fjölskyldunni að sjálfsögðu.

Hvað varð til þess að þú tókst að þér þetta verkefni?

Jón Þór plataði mig í þetta því ég var búin að gefa út  þá yfirlýsingu að ég væri hætt að þjálfa.

Hvernig líst þér á FH hópinn í sumar í samanburði við árið í fyrra?

Mér líst ágætlega á sumarið en því miður eru meiðsli lykilleikmanna að setja strik í reikninginn,þar sem hópurinn er ekki stór gæti þetta haft einhver áhrif á gengi liðsins.

Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið?

Það hefur gengið mjög vel, búnar að puða í allan vetur bæði hjá Silju Úlfars og okkur Jóni Þór. Við fórum í æfingaferð til Portúgals í aprílbyrjun sem þjappaði liðinu mjög vel saman, undirbúningurinn gæti ekki hafa heppnast betur.

Hvernig líst þér á fyrsta leik gegn þínum gömlu félögum í KR?

Ég hlakka bara til að mæta  mínu gamla góða félagi KR, þaðan sem ég á frábærar minningar. Ég er að mæta Guðrúnu Jónu, þjálfara,  sem ég þjálfaði sjálf í mörg ár og spilaði með.

Hverjir eru helstu styrkleikar KR? 

KR er búið að missa margar góðar stelpur á síðustu árum en nú er uppbygging hafin hjá þeim og þær eru á góðri leið. Þar sem Guðrún Jóna er við stjórnvölinn koma þær örugglega til með að koma vel undirbúnar til leiks. Þetta eru kornungar stelpur sem eiga eftir að láta vel að sér kveða í framtíðinni eins og við.

Hvað þarf FH að gera til að ná góðum úrslitum í Frostaskjólinu?

Við þurfum að leika skynsamlega og verjast vel og hafa trú á þessu verkefni og öll þurfum við að stefna í sömu átt.

Hvernig líst þér á framhaldið?

Þetta verður skemmtilegt sumar en erfitt. Við ætlum að sjálfsögðu að halda okkur í deildinni en það gerist ekki nema allir leggi sig 100% fram. Ég hef enga trú á öðru en að það takist.

Megum við búast við að Arna taki fram skóna í sumar?

Ertu ekki að grínast. Nú er komið að þeim yngri, ég spila bara með „old girls“.

 



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?