Vís

Stutt spjall við Jón Þór

10.5.2010 Davíð A. Stefánsson

Pepsi-deildin karla og kvenna fer af stað í vikunni.  FH mætir Val í kvöld kl. 19:15 á Vodafonevellinum í karlaflokki en stelpurnar fara í heimsókn í Vesturbæinn og mæta hinu fornfræga liði KR.

Jón Þór er á sínu þriðja ári sem þjálfari mfl. kv. en hann tók við liðinu haustið 2007 af Orra þórðarsyni.  Þá hafði liðið verið eitt tímabil í 1. deild eftir að hafa fallið árið á undan úr hópi þeirra bestu.  Jón stýrði liðinu tvö tímabil í 1. deild en síðastliðið haust unnu stelpurnar sér aftur sæti í efstu deild að nýju.

Hér á eftir fer stutt spjall við Jón þar sem hann lítur yfir sviðið og spáir í spilin fyrir sumarið. 

Sæll Jón og hvernig hefur þú það?
Alveg ljómandi þakka þér fyrir, grasið að grænka og styttist í stórmót.

Nú ert þú að hefja þitt 3ja tímabil sem þjálfari mfl. Kv.  Hvernig hefur þetta þróast á þeim árum og telur þú að FH sé á réttri leið?
Það má með sanni segja að okkur hafi gengið margt í haginn á undanförnum árum. Hefur þar margt spilað inn í ; samvinna margra áhugasamra utan vallar, stjórn, foreldrar sem og framlag leikmanna/þjálfara. Við sjáum glitta í að hið mikla uppeldisstarf í kvennabolta undanfarinna ára  sé að skila sér í mörgum efnilegum og frambærilegum leikmönnum í meistaraflokki. Kvennaboltinn á Íslandi er brothættur og það sýnir sig að þar sem að ríkir lognmolla í einhvern tíma þar er voðinn vís í brottfalli leikmanna og lakara starfi.  Þetta höfum við F.H.- ingar þvi miður þurft að upplifa. Því er mikilvægt að halda áfram á fullri ferð og átta okkur á að það er stór munur á að vera efnilegur eða góður.

Hvernig er hópurinn í samanburði við árið í fyrra?
Ég tel að hópurinn í ár sé tvímælalaust sterkari en í fyrra. Spilar þar inn í að við höfum fengið til liðs við okkur nýja leikmenn sem  bæði auka getu og breidd. Einnig eru ungu leikmennirnir okkar orðnir árinu eldri og margir hverjir hafa tekið miklum framförum.

Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið?
Undirbúningstímabilið gekk mjög vel. Stelpurnar voru duglegar að æfa og tilbúnar að leggjar hart að sér. Við nutum ma. liðsinnis Silju Úlfarsdóttur varðandi þrekþáttinn og erum viss um að liðið er  betur statt en undanfarin ár. Eins og gengur hafa nokkrir leikmenn orðið fyrir hnjaski en við því má alltaf búast og við treystum á að maður komi í manns stað. Okkur gekk vel í Faxaflóamótinu og Lengjubikar en við verum að vera raunsæ því  úrslit vetrar-og vorleikja segja oft  lítið um gengi liða yfir sumarið. Nú eru mörg lið í kvennaboltanum að styrkja sig fyrir sumarið og ljóst að mörg hver mæta sterkari til leiks en þau voru í vetur.

Nú fór liðið, ásamt 2. Fl., í æfingaferð til Portúgals á dögunum.  Hvernig tókst sú ferð?
Sú ferð var í einu orði frábær. Allar aðstæður voru til fyrirmyndar og með því að hafa hópinn á æfingum tvisvar sinnum á dag í eina viku er hægt að gera ótrúlega margt jafnframt því sem að stemmningin  og samheldnin í hópnum verður öflugri. Þetta voru 34 stelpur sem voru á fullri ferð á æfingum og var frammistaða þeirra alveg til fyrirmyndar.

Ein klassísk spurning.  Hver eru markmið þjálfara og leikmanna mfl. kv. fyrir tímabilið2010?
Við leggjum lykiláherslu á að halda sæti okkar í deildinni. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þetta er allt annar heimur en 1.deildin og við þurfum að vera tilbúin að mæta mjög öflugum liðum. Þetta á eftir að reyna mikið á hópinn en við hlökkum til að takast á við þær bestu og viljum sanna að efsta deild sé okkar vettvangur. Nú er bara að njóta þessa ævintýris.

Megum við eiga von á að Arna aðstoðarþjálfari taki fram skóna að nýju?
Það er mjög líklegt að Arna taki fram takkaskóna þegar grasið verður orðið iðagrænt og við fáum æfingu á aðalvellinum
J

 


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?