STÓRLEIKUR HK-FH Aðeins 500 kr inn
17.2.2009
Heiðar Arnarson
N1 deildin, fimmtudagurinn 19. febrúar 2009, kl 19:30
FH ingar leika
etv einn af stærstu leikjum vetrarins fimmtudaginn 19. febrúar þegar liðið
heimsækir HK í Kópavoginn. FH liðið er sem stendur í 3. sæti deildarinnar með
18 stig en HK í 5. sæti með 15 stig. Með sigri getur FH náð 5 stiga forskoti á
5. sætið þegar 5 umferðir eru eftir og myndi því stíga ákveðið skref í átt að
úrslitakeppninni í vor.
ATH Taka skal fram að
fyrir leik HK og FH í Digranesi fimmtudaginn 19.febrúar þurfa handhafar
aðgönguskírteina HSÍ að nálgast miða á leikinn miðvikudaginn 18. febrúar frá kl
13-15. Miðar verða afhendir á skrifstofu HK í Digranesi gegn framvísun
skírteinis. Því gilda aðgönguskírteinin ekki við inngang. HK menn vísa þessu
til stuðnings í reglugerð HSÍ um aðgönguskírteini 1.gr. Almennt er aðgangseyririnn aðeins kr. 500.
HK-liðið
HK hefur etv ekki
staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til þeirra fyrir tímabilið. Til að
mynda var liðinu spáð þriðja sætinu í N1 deildinni fyrir mótið. HK liðið er
skipað mjög góðum leikmönnum eins og Valdimari Þórssyni, Sverre Jakobsen, Ólafi
Bjarka Ragnarssyni, Sigurgeiri Árna FHingi og áfram mætti telja. HK hefur
sigrað 6 leiki, gert 3 jafntefli en tapað 6. Þrátt fyrir að árangurinn ætti etv
að vera betri hjá liðinu er nokkuð ljóst að FH hefur ekki sótt gull í greypar
Kópavogsmanna. FH hefur spilað við HK í tvígang og beðið lægri hlut í bæði
skiptin og í raun án teljandi vandræða HK manna. Það er því ærið verkefni
framundan og mögnuð barátta um 4 sætið en einnig á FH liðið harma að hefna sem
ætti að kveikja vel í þeim.
Undirbúningur
Mikið er undir í þessum leik eins og áður segir og hafa menn verið mjög
innstilltir í vikunni. Við tökum með gott veganesti frá síðasta leik gegn
Akureyri þar sem við höfðum góðan sigur. Við getum þó ekki leyft okkur að hefja
leikinn gegn HK á sama hátt og við gerðum gegn Akureyri, en varnarlega vorum
við á gráu svæði í fyrri hálfleik og gegn eins sterku liði og HK getur illa
farið ef menn eru ekki á tánum frá fyrstu mínútu. Við löguðum stöðuna í seinni
hálfleik og ljóst að sami eldmóður í vörn þarf að vera til staðar allan tímann.
N1 deildin
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Valur |
15 |
9 |
3 |
3 |
415:358 |
57 |
21 |
| 2. |
Haukar |
14 |
10 |
0 |
4 |
408:352 |
56 |
20 |
| 3. |
FH |
15 |
8 |
2 |
5 |
455:445 |
10 |
18 |
| 4. |
Fram |
15 |
7 |
3 |
5 |
412:414 |
-2 |
17 |
| 5. |
HK |
15 |
6 |
3 |
6 |
401:411 |
-10 |
15 |
| 6. |
Akureyri |
15 |
6 |
1 |
8 |
387:417 |
-30 |
13 |
| 7. |
Stjarnan |
15 |
3 |
3 |
9 |
368:401 |
-33 |
9 |
| 8. |
Víkingur |
14 |
2 |
1 |
11 |
355:403 |
-48 |
5 |
Aðrir leikir
| Fim. 19.feb.2009 |
19.30 |
Mýrin |
Stjarnan - Fram |
|
|
| Fim. 19.feb.2009 |
19.30 |
Víkin |
Víkingur - Akureyri |
|
|
| Lau. 21.feb.2009 |
14.00 |
Ásvellir |
Haukar - Valur |
|
|
Stuðningur
Ef stuðningur hefur einhverntíman verið mikilvægur í vetur, þá er það núna.
Um er að ræða einstakt tækifæri til þess að taka skýra afstöðu í deildinni og
stíga vænt skref frá 4 neðstu sætunum. FH stuðningmenn sem hafa verið frábærir
í vetur eru hvattir til þess að mæta með tryllta stemmningu inn í Kópavog og
hjálpa strákunum að komast nær sínu takmarki. Missið ekki af stórleik í
handbolta milli tveggja frábærra liða.
Áfram FH!!!