Stelpurnar sigruðu í Mosó

23.2.2010 Davíð A. Stefánsson
FH-stelpurnar unnu stóran sigur á Aftureldingu í Mósó í Faxanum í kvöld.  Staðan í leikhlé var 0-3 en í síðari hálfleik bætti FH við 5 mörkum.  Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir FH nokkrir en veðurfar var ekki eins og best verður á kosið að þessu sinni.

Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir og Sandra Björk Sigþórsdóttir fóru mikinn í liði FH og skoruðu 3 mörk hvor, Ana Rita Andrade Gomes 1 og Margrét Sveinsdóttir 1.

Framundan er erfiður leikur gegn sterku liði ÍBV, laugardaginn 27. næstkomandi í Kórnum kl. 16:30. 

Leikurinn verður vafalaust spennandi en skemmst er að minnast þess að liðin háðu blóðuga baráttu um sæti úrvalsdeild síðastliðið sumar.  Þar hafði FH betur á dramatískum lokamínútum á Hásteinsvelli í Eyjum.  Í hita leiksins lét einn heimildamaður þessi fleygu ummæli falla í leikslok:

 "þær fagna núna eins og vistmenn á kleppi sem hafa losnað úr spennitreyju"

Frábær árangur þar og ástæða til að gleðjast.  Vonandi ná stelpurnar að standa sig vel á komandi keppnistímabili og sanna tilverurétt sinn meðal þeirra bestu.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?