Vís

Stelpurnar lögðu Hauka í bráðskemmtilegum leik

2.10.2011 Guðjón Örn Helgason
Tímabilið byrjar vel hjá kvennaliðinu en FH vann Hauka í fyrstu umferð N1-deildarinnar í handbolta 31-28 en leikar fóru fram í Kaplakrika.

Leikurinn byrjaði rólega og var nokkuð um mistök á báða bóga og það skiljanlega þar sem bæði lið tefldu fram mörgum ungum leikmönnum. Vörnin hjá FH var sterk í byrjun leiks en sóknarleikurinn var aðeins lengur í gang. Eftir um 20 mínútur var staðan 10-5 fyrir gestina og tóku þá FH stelpurnar við sér og horfðu ekki til baka. Liðið spilaði stórskemmtilegan sóknarleik þar sem mörkin komu úr öllum áttum. FH náði að jafna metin fyrir hálfleik og þegar leikmenn héldu til búningsherbergja var staðan 12-12.

Það var svo aldrei spurning hvernig leikar myndu fara í síðari hálfleik. FH hélt áfram að spila frábærlega og var liðið ekki lengi að ná forystu sem það lét ekki af hendi og lokatölur urðu 31-28.

Nokkrir leikmenn FH voru að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið. Hidur Guðmundsdóttir stóð í markinu allan tímann og varði frábærlega en hún kom frá Stjörnunni í sumar. Þá léku fyrrum Fylkisstelpurnar Indíana Nanna Jóhannsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir mjög vel en þær hafa aðeins verið í herbúðum FH í nokkra daga. Elisabeth Malmberg Arnarsdóttir og Sif Jónsdóttir gengu einnig í raðir FH í sumar og voru þær í hópnum en komu ekki við sögu í leiknum.

Mörk FH skoruðu þær:

Ingibjörg 8, Birna Íris 7/3, Kristrún 6, Sigrún 4, Berglind 3, Indíana 3.

Hildur varði 19 skot í markinu.

Umfjöllun um leikinn á sport.is


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?