Stelpurnar komnar í úrslit
22.10.2011
Guðjón Örn Helgason
FH hefur unnið alla fjóra leiki sína í Faxe Kondi æfingamótinu í
Grænlandi.
Liðið vann þriðja leikinn í riðlinum gegn NUK 30-28 og endaði því með fullt hús stiga í efsta sætinu.
Mörk FH skoruðu:
Aníta Mjöll 8, Hafdís 4, Sif 4, Margrét 4, Ingibjörg 3, Sigrún 2, Fanney 1, Steinunn S. 1, Arndís 1, Birna Íris 1, Rakel 1.
Liðin mættust aftur degi síðar í undanúrslitum þar sem FH hafði algjöra yfirburði og vann sannfærandi sigur 30-14.
FH er því komið í úrslitaleikinn sem fer fram á sunnudag og verður sýndur í ríkisjónvarpi Grænlands.
Upplýsingar um mótið