Stelpurnar að gera það gott í Grænlandi
21.10.2011
Guðjón Örn Helgason
FH er að gera góða hluti á æfingamóti í Grænlandi en liðið hefur unnið
tvo fyrstu leiki sína.
Fyrsti leikur liðsins í mótinu var gegn Nuuk Byhold og voru þær grænlensku lagðar 37-26.
Mörk FH skoruðu þær:
Steinunn S. 8, Sigrún 5, Hind 5, Hafdís 4, Kristrún 4, Berglind 3, Ingibjörg 2, Aníta Mjöll 2, Margrét 2, Arndís 1, Sif 1.
Annar leikurinn var gegn Grænlandsmeisturum GSS og fór FH einnig með sigur af hólmi í þeirri viðureign. Lokatölur voru 26-22.
Mörk FH í leiknum skoruðu þær:
Steinunn S. 7, Sigrún 4, Ingibjörg 4, Berglind 2, Steinunn G. 2, Birna Íris 1, Aníta Mjöll 1.
Steinunn Snorradóttir er markahæst á mótinu eftir tvo leiki með 15 mörk en næst á eftir henni er Panu P. Grönvold leikmaður GSS með 13 mörk.
Næsti leikur FH liðsins er gegn NUK.
Upplýsingasíða um mótið