Vís

Sigur í Lengjubikar B-deild

1.5.2010 Davíð A. Stefánsson


Með 3-1 sigri FH á ÍBV í gærkvöldi er ljóst að FH fer með sigur af hólmi í B-deild Lengjubikars kvenna.  FH safnaði 12 stigum en í 2. sæti lentu Haukar með 10 stig og ÍBV í 3. sæti, einnig með 10 stig, en verra markahlutfall.  Haukar og ÍBV áttust við í dag og skildu jöfn og þar með varð ljóst að FH sigraði mótið.

FH-ingar óska stelpunum og þjálfurum þeirra til hamingju og óska þeim góðs gengis á stóra sviðinu.

Myndin hér að ofan var tekin síðastliðið sumar þegar 2. fl. kv. varð bikarmeistari eftir æsispennandi framlengdan leik gegn Haukum.  Margar af þeim stelpum sem léku þann leik hafa leikið með mfl. að undanförnu.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?