Sigur í Keflavík

13.2.2010 Davíð A. Stefánsson
FH-stelpurnar mættu Kefllavík í Faxaflóamótinu í Reykjaneshöllinni hádeginu í dag.

Staðan í hálfleik var 0-0 en Aldís Klara Lúðvíksdóttir skoraði tvö mörk undir lok leiksins.
Fyrra markið var með góðu skoti úr þröngu færi, en í seinna markinu fylgdi hún eftir þrumuskoti Liliönu Martins sem markvörðu Keflavíkur varði en náði ekki að halda boltanum.

FH var mun meira með boltann allan leikinn en Keflavík spilaði mjög skipulegan varnarleik. Undir lok leiksins færði FH liðið sig framar á völlinn og pressan skilaði loks árangri með tveimur mörkum Aldísar

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?