Vís

Sigur gegn Gróttu í útivelli

16.12.2011 Steingrímur Gústafsson
FH-ingar tryggðu sér sæti í deildarbikarnum milli jóla og nýárs með því að vinna 27-24 útisigur á botnliði Gróttu í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Grótta tapaði þarna sínum ellefta deildarleik í röð en FH-ingar voru nálægt því að missa frá sér sigurinn í lokin. Lárus Helgi Ólafsson átti frábæran leik í marki Gróttu og varði alls 24 skot í leiknum þar af voru tvö vítaköst. Þráinn Orri Jónsson skoraði 7 mörk fyrir Gróttu en markahæstur FH-inga var Ólafur Gústafsson með sjö mörk. FH-liðið náði frumkvæðinu strax í byrjun leiks, komst í 3-0 og 5-1 og var með þriggja marka forystu í hálfleik, 15-12. FH-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn vel, voru komnir með sex marka forskot 19-13, eftir aðeins sjö mínútur og það leit allt út fyrir stórsigur þeirra. Gróttumenn gáfust ekki upp og unnu sig hægt og rólega inn í leikinn á nýjan leik. Grótta náði á endanum að minnka muninn niður í eitt mark, 24-25, þegar fimm mínútur voru eftir en Einar Andri Einarsson og Kristjáns Arason tóku þá leikhlé og fóru yfir málin með sínum málum. FH-ingar svöruðu með því að vinna lokamínúturnar 2-0 og tryggja sér sigurinn.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?