Ólympíusilfrið er komið í Kaplakrika
31.10.2011
steingrimur
Eftir Ólympíuleikana í Peking árið 2008 tjáði Logi sig við fjölmiðla og ákvað að þegar hann myndi leggja skóna á hilluna þá myndi hann setja Ólympíusilfrið og öll sín verðlaun sem hann vann sem íþróttamaður til sýnis uppí Kaplakrika.
Nú hafa FH-ingar gert stórglæsilegan skáp og fyllt hann af verðlaunum sem Logi sópaði að sér á fræknum ferli sem handknattleiksmaður í allra fremstu röð, með FH, Lemgo og síðast og ekki síst landsliðinu.
Þarna er að finna Fálkaorðu, Evrópumeistarmedallíur, Ólympíusilfrið sjálft, Gullmerki Hsí og FH, Íslandsmeistara og deildarbikarmeistari með FH, bronzið frá því á Evrópumeistaramótinu sem og myndir og fleiri aukahluti sem tengjast Loga.
Logi er eini FH-ingurinn sem hefur hefur unnið til verðlauna á Ólympíuleikum en vonandi verða þeir fleiri í framtíðinni. Síðan að skápurinn var settur upp hefur mikið af fólki lagt leið sína í Kaplakrika til að skoða silfrið enda stærsti árangur íslenskar íþróttasögu frá upphafi.
Gestum og gangandi er velkomið að koma við í Kaplakrika og skoða skápinn og fá sér einn kaffisopa.