Vís

Nýtt skráningar- og greiðslukerfi barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar

31.10.2011 thelma

Knattspyrnudeild FH hefur tekið í notkun skráningar- og greiðslukerfið Nora. Æfingagjöld verða nú innheimt í gegnum kerfið tvisvar á ári. Einnig heldur það utan um póstlista, símanúmer forráðamanna, mætingar og ef þörf krefur heilsufarsupplýsingar.

Ef iðkandi vill stunda knattspyrnuæfingar hjá félaginu verður hann að vera skráður í kerfið að öðru leiti er hægt að meina honum aðgang að æfingum og keppni.

Skráning skal fara fram fyrir þann 8. nóvember.

Íbúagátt Hafnarfjarðar
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að foreldrar greiða nú æfingargjald að fullu.
Þeir sem skrá barn sitt í Íbúagátt Hafnarfjarðar fá hluta æfingargjalds endurgreitt.

Nánari upplýsingar má finna hér.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?