N1-deild karla: Tap gegn Fram
17.11.2011
Steingrímur Gústafsson
FH fór í Safamýrina í kvöld og tapaði gegn Fram, 34-33.
Jafnt var á öllum tölur í fyrri hálfleik en Fram var tveimur mörkum yfir í hálfleik 19-17. Í seinni hálfleiknum komst Fram í 25-20 en okkar menn gáfust ekki upp og jöfnuðu metin í 27-27. Fram skoraði hins vegar lokamark leiksins er staðan var 33-33 og vann því leikinn með einu marki 34-33.
Markvarsla og vörn var ekki góð í kvöld og ljóst er að eigi sigur að vinast í næsta leik verður vörnin og markvarslan að vera betri.
FH: Mörk: Ólafur Gústafsson 7 Andri Berg Haraldsson 9 Þorkell Magnússon 8 Atli Rúnar Steinþórsson 3 Halldór Guðjónsson 3 Sigurður Ágústsson 1 Ísak Rafnsson 1 Hjalti Pálmason 1
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 6 Pálmar Pétursson 1
Stór hópur FH-inga var á leiknum í kvöld og studdi rækilega við bakið á okkar mönnum. Næsti leikur er í Krikanum gegn Akureyri, miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 18:30! Það þýðir ekkert annað en að rífa sig upp og mæta grimmari til leiks í þeim leik! VIÐ ERUM FH!!!