Vís

Mfl. kv. í æfingaferð til Portúgal

6.4.2010 Davíð A. Stefánsson


Annan í Páskum héldu þau Jón Þór og Arna Steinssen, þjálfarar mfl. kv., ásamt fríðu föruneyti til Portúgal í æfingaferð.

Liðið heldur til í Albufeira en þar verða einnig fyrir karla- og kvennalið Stjörnunnar ásamt kvennaliði Hauka.  Haft var eftir Jóni Þór, skömmu fyrir brottför, að "...ferðin væri með hefðbundnu snið; æft tvisvar á dag og leiknir æfingaleikir við íslensku liðin." 

Æfingaleikir:
Mið. 8. apríl 2. fl. FH-Stjarnan 
Fim. 9. apríl mfl. FH-Stjarnan
Lau. 10. apríl. mfl. FH-Haukar
! Stefnt er að öðrum æfingaleik fyrir 2. fl.

Fararstjóri í ferðinni er engin önnur en reynsluboltin og valkyrjan Margrét "Gréta" Brandsdóttir en hún tók á móti mörgum þeirra stúlkna, sem nú leika með mfl., á sína fyrstu fótboltaæfingu.

Til gamans má geta þess að í dag eru þrír leikmenn liðsins portúgalskir, þær: Ana Rita, Joana og Lilliana.

Liðið er svo væntanlegt til baka þriðjudaginn 13. apríl en þann sama dag halda Heimir og félagar í mfl. karla á sama stað í sömu erindagjörðum.

Úrslitin úr leikjum liðsins verða birt á fh.is.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?