Vís

Maggi fer ekki í aðgerð

26.10.2011 steingrimur
Magnús Óli Magnússon sem meiddist í síðasta leik gegn Gróttu 20. október í Kaplakrika sleppur við aðgerð en óttast var að hann hafi sltitið krossband en svo er ekki. Þetta eru gleðifregnir og Magnús sagði við FH.is að hann væri mjög ánægður með að sleppa við aðgerðina. Magnús sleit hins vegar innra liðband í hægra hné sem tengist í hnéskelina og skaddaði hliðarliðband sem er við hnéskelina. Þetta grær að sjálfu sér og Magnús þarf því ekki að gangast undir aðgerð en verður þó frá í 10-12 vikur. Jákvæðar fréttir eru af meiðslum Ragnars Jóhannssonar hægri skyttu en hann fékk gönguspelku í fyrradag.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?