Vís

Lokahóf og meistaraball á laugardaginn

14.5.2011 SR

Á laugardaginn kemur sannkallað meistaraball í Kaplakrika... með Eurovison þema  

Ekki minni snillingar en Stebbi og Eyvi, Ingó veðurguð og Matti og draugabanarnir munu trylla líðinn.

Kvöldið hefst á lokahófi með mat kl. 19:15 og svo stórdansleikur og meistaraball kl. 23:00.

Aldurstakmark er 20 ára.

Maturinn verður framreiddur af snillingunum í Kjötkompaní.

Þá mun FH Dýnamítið frumflytja nýtt lag.

Skráning og miðasala fer fram hjá:

- Sigursteinn, sigursteinn@fh.is, 697-7008

- Sverrir, sverrir@fh.is, 892-6553

- Jóhannes, joirun@gmail.com, 864-6352

Forsala fer einnig fram á Súfistanum.

Verð á öll þessi herlegheit er ekki nema:

- 4.900 kr. fyrir Bakhjarla (mat og ball)

- 5.900 kr. fyrir aðra FH-inga (mat og ball)

- 2.500 kr. á ballið (eftir kl 23.00)

TAKTU KVÖLDIÐ 14. MAÍ FRÁ!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?