Lokahóf FH: Matti og Biddý best - Emil og Aldís efnilegust
12.10.2011
Anton Ingi Leifsson
Lokahóf FH fór fram um síðustu helgi þar sem flest allir ef ekki allir skemmtu sér konunglega. Þórarinn Böðvar Þórarinsson var veislustjóri og hélt vel utan um taumana auk þess sem tvö skemmtiatriði voru, leikmenn meistaraflokks með vídeo-sýningu og Tómas Þórðarson með uppistand.
Matthías Vilhjálmsson og Bryndís Jóhannesdóttir voru valin best og Emil Pálsson og Aldís Kara Lúðvíksdóttir voru valin efnilegust. Í öðrum flokki voru það Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Elísabet Guðmundsdóttir sem voru valin best og efnilegust voru þau Emil Atlason og Sveinbjörg Andrea Auðunsdóttir.