Jafntefli í Garðabænum

1.3.2010 Davíð A. Stefánsson
Stjarnan og FH mættust á gervigrasinu í Garðabænum í dag.  Leikurinn var síðasti leikur liðanna í Faxaflóamótinu en fyrir leikinn voru liðin með jafn mörg stig í öðru sæti en Breiðablik hafði þegar tryggt sér sigur í mótinum með fullt hús stiga.

Fyrri hálfleikur var heldur atkvæða lítill og jafnræði með liðunum.  Fá færi litu dagsins ljós og leikurinn að mestu spilaður á miðsvæðinu. 
Síðari hálfleikur var öllu fjörugri og liðin tóku að skapa sér færi.  FH skoraði á upphafs mínútunum en Stjarnan jafnaði undir lok leiksins.  Mark FH gerði Silja Þórðardóttir sem jafnfram átti góðan leik á miðjunni.

Sem fyrr segir líkur hér með Faxanum og hafnar liðiið í 2 sæti með jafn mörg stig og Stjarnan en betra markahlutfall.

Þess er þó ekki langt að bíða að liðið hefji leik að nýju og þá í Lengjubikarnum.  Fyrsti leikur FH verður gegn Keflavík, sunnudaginn 7. mars í Reykjaneshöllinni.

Hér má sjá myndir frá leiknum á Stjörnuvelli.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?