Vís

Jafntefli gegn HK á útivelli

14.10.2011 steingrimur
FH strákarnir mættu HK á útivelli í 4. umferðinni í kvöld. Leikurinn endaði með 30-30 jafntefli en HK-ingar jöfnuðu með vítakasti á lokasekúndum leiksins. HK leiddi mest allan fyrri hálfleikinn en í byrjun seinni hálfleiks náðu FH-ingar fjögurra marka forystu sem hélst því miður ekki til endaloka og fór sem fór. Næsti leikur er á sunnudaginn í Kaplakrika klukkan 19:30 gegn belgíska liðinu Initia Hasselt, en þetta er seinni leikurinn í EHF-Evrópukeppninni. Fyrri leikurinn ytra sl. sunnudag endaði með eins marks sigri okka manna 29-28. Meira um þann leik síðar hér á síðunni. Umfjallanir um leikinn í dag sem og viðtöl: http://mbl.is/sport/handbolti/2011/10/13/bjarki_bjargadi_stigi_fyrir_hk/ http://mbl.is/sport/handbolti/2011/10/13/daniel_hefdi_thurft_ad_taka_eitt_viti/ http://visir.is/einar-andri--mikilvaegur-punktur/article/2011111019448 http://visir.is/umfjollun--sanngjarnt-jafntefli-i-digranesi/article/2011111019461 http://www.sport.is/handbolti/2011/10/13/n1-deild-karla-bjarki-tryggdi-hk-stig-i-digranesi/ http://www.sport.is/sportvarp/2011/10/13/sportvarp-kristjan-arason-fh-11/

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?