Vís

Jafntefli gegn Gróttu

12.11.2011 Guðjón Örn Helgason
Meistaraflokkur kvenna gerði jafntefli 23-23 við Gróttu í kaflaskiptum leik í Kaplakrika.

FH var betri aðilinn í fyrri hálfleik og var yfir 13-10 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik fóru stelpurnar hreint frábærlega af stað og komust í 17-10 en við tók slæmur kafli þar sem Grótta skoraði sjö í röð. Gestirnir sigldu svo fram úr og höfðu yfir 23-21 þegar lítið var eftir. FH minnkaði muninn og Ingibjörg tryggði stigið á lokasekúndunum með marki eftir gegnumbrot.

FH er eftir leikinn í sjöunda sæti með þrjú stig eftir sex leiki en Grótta situr í neðsta sæti með eitt stig.

Mörk FH skoruðu þær:

Ingibjörg 7, Birna Íris 6, Berglind 4, Steinunn 3, Sigrún 2, Indíana 1.

Elísabeth stóð í markinu lungann af leiknum og varði vel.

Umfjöllun sport.is




Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?