Jafntefli gegn Akureyri í Krikanum
23.11.2011
Steingrímur Gústafsson
FH og Akureyri gerðu í kvöld jafntefli, 29-29, í N1-deild karla í handknattleik og buðu upp á fín tilþrif, spennu og dramatík. FH-ingar unnu á dögunum bikarleik sömu liða á sama stað með þrettán marka mun, en sigurinn hefði í raun getað fallið hvoru liðinu sem er í skaut í kvöld.
FH 29-29 Akureyri (14-14)
Akureyringar hófu leikinn í Kaplakrika í kvöld af miklum krafti og höfðu greinilega lært ákveðna lexíu af stóru tapi á þessum sama stað í Eimskipsbikarkeppninni á dögunum. Norðanmenn voru frískir og fjörugir á upphafsmínútunum, keyrðu grimmt í bakið á FH-ingum og nýttu færin sín vel. Vörnin þeirra var í góðum gír og Sveinbjörn í miklum þar fyrir aftan og fyrr en varði höfðu Akureyringar náð fimm marka forystu, fyrst 9-4 og svo 10-5. Þá loksins virtust FH-ingar átta sig á óvenjulegri tímasetningu leiksins, ákváðu að mæta til leiks og létu þá hraustlega til sín taka. Vörnin small í lag og Daníel hreinlega lokaði markinu á löngum köflum, skotvalið varð álitlegra og nýtingin reyndar líka, en á sama tíma féll Akureyringum eldur í ketil. Þeir urðu bráðir, óðagotið mikið og véfengja má ákvarðanatökun á löngum köflum. Takturinn var FH-inga á þessum kafla og fyrr en varði voru þeir búnir að jafna metin, 11-11, og skömmu síðar voru þeir komnir yfir, 12-11, höfðu þá tekið sprett þar sem þeir skoruðu sjö mörk gegn einu. Lokamínútur fyrri hálfleiksins voru jafnar, Akureyringar ákváðu að bogna en brotna ekki og staðan í hálfleik var jöfn, 14-14. Líklega má færa fyrir því haldbær rök að sú staða hafi verið sanngjörn, Akureyringar voru sterkari framan af fyrri hálfleiknum en FH-ingar réðu ferðinni síðari hlutann.
Sama jafnræðið var með liðunum framan af síðari hálfleiknum og glímutökin voru karlmannleg. Kappar eins og Ólafur Gústafsson og Guðmundur Hólmar Helgason létu talsvert að sér kveða, Andri Berg sýndi margfrægan baráttuvilja og Heimir Örn hjó á hnúta, ekki bara með mörkum heldur með því að spila félaga sína uppi. Þegar síðari hálfleikurinn var hálfnaður var staðan enn jöfn, 22-22, FH-ingar gerðu sig nokkrum sínum líklega til að rífa sig frá gestunum en barátta og vilji Akureyringar var til eftirbreytni, nokkuð sem virst hefur vanta í nokkrum leikja liðsins í vetur, einkum þegar á móti blæs. FH-ingar náðu tveggja marka forystu í fyrsta sinn í leiknum þegar þeir komust í 26-24 og rúmar tíu mínútur til leiksloka, þá hafði staðið jafnt á öllum tölum síðan í stöðunni 11-11. Akureyringar brugðust við þessari sveiflu með því að skora fjögur næstu mörkin í leiknum og breyta stöðunni í 28-26 sér í vil, ekki síst fyrir tilstilli Stefáns Guðnasonar sem tók sér stöðu á milli stanganna. FH-ingar fundu engar glufur á þessum kafla, en Ólafur Gústafsson braut loksins ísinn tæpum fimm mínútum fyrir leikslok, 27-28. Lokamínúturnar voru hádramatískar, spennan nánast áþreifanleg. Títtnefndur Ólafur Gústafsson jafnaði metin, 29-29, rúmri mínútu fyrir leikslok, síðasta sókn Akureyringa rann út í sandinn þrettán sekúndum fyrir leikslok og Heiðar Þór Aðalsteinsson uppskar rautt spjald fyrir brot fimm sekúndum síðar auk þess sem FH-ingar fengu vítakast. Stefán Guðnason toppaði frábæra innkomu sína með því að verja vítið. Ari Magnús Þorgeirsson FH-ingur gerðist í kjölfarið brotlegur og fékk að líta rauða spjaldið, en sekúndurnar þrjár sem eftir lifðu nægðu ekki stórra verka. Niðurstaðan er jafntefli 29-29 og geta bæði lið unað nokkuð sátt við sitt.
Tekið af Sport.is.
Mörk FH: Þorkell Magnússon 8/5, Ólafur Gústafsson 8, Andri Berg Haraldsson 6, Ari Magnús Þorgeirsson 3, Sigurður Ágústsson 2, Halldór Guðjónsson 1, Hjalti Þór Pálmason 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 18/1.
NÆSTI LEIKUR FH ER Á SUNNUDAGINN, 27. NÓVEMBER KLUKKAN 17:00 GEGN FRANSKA STÓRLIÐINU SAINT RAPHAEL. Allir á völlinn!
Við erum FH!
Viðtal við Ólaf Gústafsson (Mbl.is)
http://mbl.is/sport/handbolti/2011/11/23/olafur_attum_ad_fa_baedi_stigin/
Viðtal við Ólaf Gústafsson (Vísir.is)
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP7659
Umfjöllun um leikinn (Mbl.is)
http://mbl.is/sport/handbolti/2011/11/23/jafntefli_i_kaplakrika/
Viðtal við Kristján Arason (Sport.is)
http://www.sport.is/sportvarp/2011/11/23/sportvarp-kristjan-arason-fh-13/
Viðtal við Ólaf Gústafsson (Sport.is)
http://www.sport.is/sportvarp/2011/11/23/sportvarp-olafur-gustafsson-fh/
Umfjöllun og viðtöl (Vísir.is)
http://visir.is/umfjollun-og-vidtol--fh---akureyri-29-29/article/2011111129571