Hvað segja Gummi Gumm og Hrafnkels?

7.2.2009 Heiðar Arnarson
FH.is náði á dögunum tali af þungaviktarmönnum í íslenskum handbolta til að spá fyrir um undanúrslitaleikinn í Bikarnum, Valur - FH. Nafnarnir Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari og Guðmundur Hrafnkelsson fyrrverandi landsliðsmaður og nú aðstoðarþjálfari Víkinga diskútera hér leikinn...



Mikil barátta og leikgleði í FH-liðinu - Gummi Gumm

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari á von á hörkuleik þegar FH heimsækir Val í Vodafone-höllina að Hlíðarenda á sunnudag.

„Þetta eru lið sem hafa staðið sig vel það sem af er tímabili. FH-liðið er kannski ofar í deildinni en margir héldu og er nú í undanúrslitum bikars. Þeir hafa spilað mjög vel á köflum og dottið niður þess á milli. Það er mjög mikilvægt fyrir liðið að Aron og Ólafur spili, það veikir óneitanlega liðið ef að þeir eru fjarverandi og verður á brattann að sækja á útivelli.“

FH.is bað landsliðsþjálfarann að tiltaka kosti beggja liða:

FH: Mikil barátta, leikgleði og góður sóknarleikur hefur verið aðalsmerki liðsins í vetur. Varnarleikurinn gæti verið betri en hefur þó á köflum verið góður. Heilt yfir er það sóknarleikur og hröð upphlaup sem eru styrkleiki liðsins.

Valur: Valsmenn hafa mjög breiðan hóp og marga góða leikmenn, þannig geta þeir dreift álaginu. Þeirra helsti styrkleiki er kannski sá hvað þeir eru jafnir í vörn og sókn, enginn afgerandi munur þar á milli. Svo vegur reynslan þungt í svona leikjum.

Hvað leikinn sjálfan varðar vildi Guðmundur ekki spá fyrir um úrslit stöðu sinnar vegna en hann á von á hörkuleik tveggja góðra liða.


FH-ingar fullir sjálfstrausts - Guðmundur Hrafnkels

Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, lék á sínum tíma með bæði FH og Val. FH.is spurði Guðmund út í leik Vals og FH í undanúrslitum bikarsins og hvernig hann spáir að leikurinn fari.
Guðmundur er leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi og átti hann afar farsælan feril sem slíkur. Guðmundur lék nokkur tímabil sem atvinnumaður, bæði í Þýskalandi og á Ítalíu, auk þess sem hann spilaði hér heima fyrir Val, FH, Breiðablik, Fylki og Aftureldingu.

Í dag starfar Guðmundur hjá Fjölsmiðjunni í Kópavogi.

Hvernig finnst þér handknattleiksumhverfið vera núna samanborið við það þegar þú varst að byrja?

Þegar ég var að byrja í meistaraflokki voru miklu fleiri lið.  Spilað í þremur deildum og margt fólk sem kom til að horfa á, mikil stemmning.  Húsin voru miklu færri og minni en þau eru í dag og oft erfitt að fá æfingatíma.  Aðstaðan til æfinga og leikja er orðin miklu betri í dag en að sama skapi hefur liðunum fækkað, sem er auðvitað ekki nógu gott.   

Hver er helsti styrkleiki Valsliðsins að þínu mati?

Valsmenn eru með vel mannað og mjög heilsteypt lið.  Geta spilað góða vörn og eru fljótir fram.  Þeir hafa verið lengi í toppbaráttunni og eru með reynslumikið lið þrátt fyrir ungan aldur sumra leikmanna.   

En hjá FH?

FH er með gott lið blandað ungum leikmönnum ásamt eldri og reyndari.  Þeir hafa komið gífurlega sterkir til leiks og eru fullir sjálfstrausts.  Spila mjög góðan sóknarleik og eru með reyndan markvörð fyrir aftan vörnina.

Hvernig fer svo leikurinn?

Leikmenn beggja liða hafa átt við meiðsli að stríða þannig að það er svolitið erfitt að spá.  Ég held samt að Valsmenn vinni leikinn á heimavelli.

Áttu von á fullri Vodafone-höll?

Já ekki spurning.  Margir líta á þennan leik sem úrslitaleik Bikarkeppninnar því sigurvegararnir mæta fyrstudeildarliði Gróttu..

FH.is þakkar þessum herramönnum kærlega fyrir góðar pælingar!

 


 

 



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?