Haukar tóku orrustu nr. 3

5.2.2009 Heiðar Arnarson


34-22

N1 deildin, fimmtudagurinn 5. febrúar 2009, kl 19:30


FHingar áttu dapran dag er þeir mættu Haukum í kvöld í 3. orrustu liðanna í vetur. FH liðið réð ekki við sterkan varnarleik Hauka og juku þeir forskot sitt jafnt og þétt og höfðu síðan stórsigur 34-22 eftir að staðan hafði verið 15-9 í hálfleik.


Fyrri hálfleikur

FH liðið byrjaði frekar illa. Haukar komust í 4-1 eftir 5 mínútur, en FH klóraði í bakkann og komust í 4-3. Haukar juku þá muninn í 7-3, fóru síðan í 10-5. Mest fóru leikar 15-8 í fyrri hálfleik og staðan ekki góð. Það var svo 15-9 í hálfleik. Leikur liðsins var í raun ekki að ganga upp hvernig sem á það er litið. Sóknarleikurinn komst lítt áfram gegn vörn Hauka, spil liðsins var stirt, tekin voru mörg slök skot og dauðafæri illa nýtt. Eins var allt of mikið af tæknifeilum. Haukar skoruðu því mörg mörk úr hraðaupphlaupum. Vörnin komst aldrei almennilega í gang. Baráttuna vantaði sem verið hefur í síðustu leikjum, menn töluðu ekki nægilega saman og bökkuðu hvorn annan illa upp.

 

Seinni hálfleikur

Það breyttist lítið í seinni hálfleik. Fljótlega virtist eins og menn hefðu ekki trú á verkefninu. Menn hlupu illa til baka, voru óákveðnir og baráttan lítil. Hlutir í raun að birtast sem ekki hefur sést til liðsins lengi. Haukar juku forystu sína meira í byrjun seinni hálfleiks og ef menn töldu einhverja von í byrjun hálfleiksins þá dó hún strax á fyrstu 10 mínútunum. Haukar voru komnir í 22-13 eftir 12 mínútur því miður fyrir okkur FHinga virtist leikurinn vera búinn. Mestur fór munurinn upp í 13 mörk 32-19. Leikurinn endaði síðan 34-22.

 

Niðurstaðan

Því miður fór sem fór í kvöld. Ekki dagur okkar drengja en svona er boltinn stundum. Menn ætluðu sér mikið meira og baráttan og leikgleðin sem verið hefur í liðinu vantaði algjörlega í dag. Liðið sem heild lék illa og enginn einn ábyrgari en annar. Það þýðir þó lítið að staldra við þennan leik. Haukarnir eiga þá einn sigur gegn tveimur okkar og það kemur annar FH - Haukaleikur eftir þennan.

Nú er að bretta ermar, taka þessum ósigri eins og menn og fara að huga að stórleiknum gegn Val sem leikinn verður á sunnudaginn. Um er að ræða undanúrslit í Eimskipsbikarnum og ljóst að til þess að komast í úrslitaleikinn þurfa okkar menn að ná sér í mun betri mótiveringu og sýna allt annan leik. Fréttaritari fh.is hefur fulla trú á að leikmenn geri það enda býr geysilega mikið í þessu liði. Mótiveringin er úrslitaleikur í Bikar og fyrsta tækifæri til þess að vinna dollu síðan 1999 þegar FH komst í úrslit, beið þá lægri hlut fyrir Aftureldingu en síðasti bikarmeistaratitill FH var árið 1994.

 

Markaskorarar (mörk/skot (víti):

Örn Ingi Bjarkason 5/6

Sigursteinn Arndal 4/5(2)

Hjörtur Hinriksson 4/6

Guðmundur Pedersen 3/6(2)

Bjarni Fritzson 3/6

Jónatan Jónsson 2/3

Ásbjörn Friðriksson 1/5

Hermann Björnsson 0/3

 

Varin skot (varið/skot á sig/(víti varið):

Magnús Sigmundsson 4/23(2)

Hilmar Guðmundsson 2/17

 

Staðan


  L U J T Mörk Stig
1. Haukar 14 10 0 4 408:352 20
2. Valur 14 8 3 3 390:334 19
3. Fram 14 7 3 4 383:382 17
4. FH 14 7 2 5 417:413 16
5. Akureyri 14 6 1 7 355:379 13
6. HK 14 5 3 6 369:382 13
7. Stjarnan 14 3 3 8 344:376 9
8. Víkingur R. 14 2 1 11 355:403 5


Aðrir leikir

5.2.2009 Stjarnan 20 : 19 Víkingur R.
5.2.2009 Valur 28 : 25 HK
5.2.2009 Akureyri 21 : 21 Fram

 



Stuðningur

FH fékk frábæran stuðning í kvöld. Mæting var gífurlega góð af hálfu FHinga en því miður fór sem fór í kvöld. Þessi stóri góði hópur er aftur á móti hvattur til að leggja leið sína í Vodafone höllina á sunnudag kl 16 þar sem FH mun selja sig en bikarúrslit eru handan við hornið. Forsala hófst á leiknum í kvöld og mun vera í Kaplakrika fram að leik en einnig verður forsala í Firði Hafnarfirði milli 14 og 18 þar sem FH liðið mun standa vaktina. Auglýst betur síðar. Mætum öll og komum drengjunum okkar í úrslitaleikinn!!! Bikarinn í Krikann!

 

Áfram FH !!!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH