Haukar jöfnuðu metin

10.3.2009 Heiðar Arnarson

22-17
N1 deildin, Ásvellir, mánudagurinn 10. mars 2009, kl 19:30


Haukar jöfnuðu metin í 4. orrustu Hafnarfjarðarliðanna í gærkvöldi þegar þeir lögðu okkur FHinga 22-17 á Ásvöllum. Eins og sést á lokatölum var ekki mikið um fína sóknartilburði og nýmæli að FH sem skorað hefur flest mörk í deildinni í vetur með 30 mörk að meðaltali í leik skori aðeins 17 mörk í einum leik. Ef taka á jákvæða punkta úr leiknum er hægt að nefna vörn og markvörslu.

Fyrri hálfleikur

Fyrri hálfleikur var merkilegur og helst fyrir þær sakir að eftir 25 mínútna leik var staðan 8-5 Haukum í vil. Aðeins 13 mörk á 25 mínútum. Leikmenn FH voru afar staðir og óöruggir í sínum sóknaraðgerðum og Haukavörnin hljóp á lagið með því að stöðva sífellt boltann og náðu ótal fríköstum. Ekkert flot komst því á sóknarleik FH sem endaði yfirleitt á því að menn tóku lélega sénsa þeas tóku slæm skot eða gáfu slæmar sendingar.

Haukum gekk þó ekkert sérstaklega vel sóknarlega heldur. Vörn FH var að spila ágætlega og Maggi var að verja vel. Þeir komust í 4-1 en FH minnkaði muninn í 4-3 þegar 10 mín voru liðnar. Haukar komust síðan í 6-3, 8-5 og síðustu 5 mínútur voru þeirra, skoruðu 4 mörk í röð og leiddu í hálfleik 12-5.

 

Seinni hálfleikur

FH hóf seinni hálfleik af krafti og náðu að hrista af sér slenið til að byrja með þegar liðið minnkaði muninn í 3 mörk 14-11. Komin var góð stemmning í liðið og það kviknaði vel í áhorfendum FH sem byrjaði að hvetja liðið vel. Það var þó skammgóður vermir því eftir leikhlé Hauka virtust þeir setja í annan gír, eða að FHingar gáfu eftir. Áfram var sóknin vandamál og næstu 10 mínúturnar skoraði FH aðeins 1 mark. Haukar komust í 19-12 og úrslitin ráðin. FH lagaði aðeins stöðuna og leikurinn endaði síðan 22-17.

 

Niðurstaðan

Því miður var ekki sjón að sjá sóknarleik liðsins í gær. Menn virtust hræddir við Haukana, sumir áhugalausir og aðrir voru bara ekki á staðnum. Ástæðuna skilur fréttaritari ekki því FH hefur akkurat enga ástæðu til þess að bera slíka virðingu fyrir Haukunum. Sama FH lið lagði Hauka í tvígang fyrir ekki svo löngu síðan þar sem liðið var betri aðilinn, bar enga virðingu fyrir þeim og og sigraði verðskuldað. Varnarleikurinn í gær var aftur á móti góður lengst af og Magnús Sigmundsson var klárlega besti maður liðsins og var góður allan tímann. Okkar lykilmenn í síðustu leikjum þeir Bjarni og Aron voru aðeins skugginn af sjálfum sér, Aron virtist áhugalaus og engan veginn til í slaginn og Bjarni var óvenjumistækur í sínum aðgerðum. Eins áttu aðrir í liðinu slæman dag og sóknarnýting liðsins í heild slæm.

En þessum leik er lokið. Nú þarf liðið og aðstandendur að hugsa í lausnum og það strax  því liðið mun taka á móti sterkum Valsmönnum á fimmtudagskvöldið. Það eru 3 leikir eftir af deildinni og nú er mál að FHingar standi saman um lið sitt og hjálpi því að ná takmarki sínu sem er enn vel raunhæft, að ná úrslitakeppnissæti. Liðið verður að hafa trú á því að það gerist, aðstandendur liðsins þurfa að hafa trú á því að það gerist og áhangendur liðsins verða að hafa trú á því að það gerist. Liðið hefur sýnt að það hefur alla burði til þess.

 

Markaskorarar

Bjarni Fritzson 5/8

Ásbjörn Friðriksson 3/7

Sigurður Ágústsson 2/2

Örn Ingi Bjarkason 2/3

Guðmundur Pedersen 2/5

Hjörtur Hinriksson 1/2

Benedikt Kristinsson 1/3

Aron Pálmarsson 1/8

Hermann Ragnar Björnsson 0/2

Ólafur Gústafsson 0/2

 

Markvarsla

Magnús Sigmundsson 15/37

Daníel Andrésson 1/1


N1 deildin

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Haukar 18 14 0 4 513:439 74 28
2. Valur 18 11 3 4 501:425 76 25
3. HK 18 8 4 6 480:485 -5 20
4. Fram 18 8 3 7 492:498 -6 19
5. FH 18 8 2 8 524:524 0 18
6. Akureyri 18 7 2 9 463:491 -28 16
7. Stjarnan 18 5 3 10 454:489 -35 13
8. Víkingur 18 2 1 15 444:520 -76 5

 


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH