Handboltaskóli Loga Geirs
22.12.2011
Heiðar Arnarson
Æfðu eins og atvinnumaður!
Handboltaskóli Loga Geirs sem hefur slegið í gegn síðustu ár verður starfræktur dagana 26.-31. desember í Kaplakrika. Það verður mikið fjör og mun Logi kenna undirstöðuatriðin sem og öll trixin í bókinni sem þarf til þess að verða atvinnumaður. Í fyrra komust færri að en vildu en í ár verður nóg pláss og fleiri þjálfarar.

Landsliðsmenn koma í heimsókn og landliðsþjálfarar yngri landsliða koma sem gestaþjálfarar til að fylgjast með ykkur og kenna. Sjónvarpið kemur eins og síðast og fylgist með landsliðsmönnum framtíðarinnar. Allir fá umsögn eftir námskeiðið frá mér um hvað þið gerið vel og hvað þið eigið að bæta. Einnig fáið þið afhenta litla matardagbók með því hvað er gott að borða og hvað ekki.
Skólanum verður skipt í yngri og eldri hóp. Einnig munum við notast við lyftingarsal fyrir eldri hópana og kenna grunninn í líkamsrækt. Sérkennsla verður fyrir markmenn.
Yngri hópur: Fædd 2000-2004
Eldri hópur: Fædd 1996-1999
Dagskrá skólans:
Gæsla fyrir þá sem vilja frá kl. 07.30 – 8.00
Handboltaskóli frá kl. 08.00-12.00.
Nesti kl. 10.00 sem krakkarnir koma með sér sjálfir.
Dagskráin verður mjög þétt og í lok skólans verður eftirsóttasti fyrirlestur landsins fluttur “ Það fæðist enginn atvinnumaður” á föstudeginum 30.desember. kl. 12-13.30. Þá geta þeir sem vilja tekið með sér nesti til að borða yfir fyrirlestrinum.
Allir eru velkomnir sama úr hvaða liðum þið komið, stelpur og strákar.
Gjafabréf verða afhent í Kaplakrika til að setja í jólapakkann 21. og 22. desember milli 16-18 en einnig verður hægt að mæta beint í búðirnar á mánudeginum 26.desember og greiða gjaldið þá. Boðið verður upp á að hægt verði að taka forskot á sæluna og staðfesta komu sína í skólann 19. des á leik FH- Hauka í Kaplakrika og fá afhent gjafabréf í jólapakkann.
Allar upplýsingar verða veittar með að senda email á logi.geirsson@gmx.de
Jólagjöf sem skilur eitthvað eftir sig.
Námskeiðið kostar 7500 kr.
Nánari upplýsingar í síma 8474999