Vís

Hafnarfjarðarslagur í úrslitum deildarbikarsins - FH sigraði HK

28.12.2011 Heiðar Arnarson
FH sigraði HK í æsispennandi leik í Flugfélag Íslands deildabikarkeppninni í gær en keppnin er haldin nú milli jóla og nýárs. Eins og flestir vita hefur FH titil að verja. Úrslitaleikurinn verður ekki af verri endanum en það er slagur erkifjenda, FH og Hauka, en Haukarnir unnu Framara stórt í gær.

FHingar unnu þetta á seiglunni í gær en leikurinn fór í framlengingu eftir að HK höfðu haft yfirhöndina mest allan leikinn. Þó hafði FH gullið tækifæri til þess að klára leikinn en HK menn jöfnuðu undir lokinn og markvörður þeirra varði vel síðasta skot leiksins. Í framlengingunni tóku FHingar af skarið í seinni hálfleik og var Atli seigur á línunni fyrir FHinga. Lokatölur 28-26.

Frábær sigur í frábærum leik. Nú er að hlaða byssurnar því úrslitaleikurinn er í kvöld. FHingar vilja að sjálfsögðu hefna ófaranna í Krikanum fyrr í þessum mánuði og halda deildabikarnum áfram þar sem hann á heima. Leikurinn hefst kl 20 og er leikinn í Strandgötu í Hafnarfirði.

Mætum öll og fyllum gryfjuna. Áfram FH!


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?