Vís

Hafnarfjarðarmótið - Frítt á alla leikina

17.8.2011 SR

Dagana 18. - 20. ágúst mun fara fram hið árlega Hafnarfjarðarmót sem FH, Haukar og Hafnarfjarðarbær hafa haft umsjón yfir í sameiningu. Mótið í ár er sérstakt því sænska úrvalsdeildarliðið Ekilstuna Guif tekur þátt í mótinu og er það í fyrsta skipti sem erlent lið tekur þátt. Eins og flestum ætti að vera kunnugt um er Guif undir stjórn íslenska þjálfarans Kristjáns Andréssonar. Að auki er einn leikmanna Guif íslenskur og er það bróðir Kristjáns, miðjumaðurinn Haukar Andrésson.

Undir stjórn Kristjáns hefur Guif náð frábærum árangri: Síðustu tvö tímabil hefur hann komið liðinu í úrslitaeinvígið, en á síðasta tímabili tapaði Guif gegn sænsku meisturunum IK Savehof.

Guif kom til landsins síðustu nótt og mun æfa þrisvar hér á landi ásamt því að leika í mótinu, gegn Íslandsmeisturum FH, Haukum og Val.

Fólk má eiga von á afar sterku handboltamóti og án efa von á mikilli handboltaveisla framundan með gæða handbolta á dagskrá.


Allir leikir mótsins munu fara fram í hinu fornfræga húsi, Íþróttahúsinu við Strandgötu og eru leikirnir sem hér segir:

Fimmtudaginn 18. ágúst
Kl 18.00 FH-Guif
kl 20.00 Haukar-Valur

Föstudaginn 19. ágúst
Kl 18.00 Haukar-Guif
kl 20.00 FH-Valur

Laugardaginn 20. ágúst
Kl 14.00 Valur-Guif
kl 16.00 FH-Haukar

Frítt er á alla leikina og hvetjum við alla handboltaunnendur að fjölmenna á leikina.


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?