Vís

Guðrún Jóna ráðin þjálfari 2. fl. kv.

19.10.2010 Davíð A. Stefánsson


Guðrún Jóna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin þjálfari 2. fl. kv. í fótbolta til næstu tveggja ára. Um leið mun hún vera Helenu Ólafsdóttur innan handan við þjálfun meistaraflokks félagsins.

Guðrún Jóna sem er með UEFA-A þjálfarastig og hefur leikið 360 leiki með mfl. KR og 25 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Undanfarin ár hefur hún þjálfað mfl. Aftureldingar og KR við góðan orðstír.

Í 2. fl. eru efnilegar stúlkur sem á undanförnum árum hafa unnið fjölda titla í yngri flokkum félagsins. Guðrúnar býður spennandi verkefni að fylgja þeim fríða hópi síðustu metrana í meistaraflokk.

FH-ingar bjóða Guðrúnu velkomna til starfa og binda miklar vonir við hennar störf á komandi undirbúningstímabili.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?